Archives for November 2004
Slegið í gegn
30 November 2004 | molar | 1 Comment
Fimmtudagurinn síðasti hafði hangið svolítið yfir mér dagana á undan. Þetta var nefnilega dagurinn sem við áttum að flytja fyrirlestur í tíma. Verkefnið var einfalt — að kynna bók fyrir samnemendum sínum, þannig að þeir hrifust nógu mikið af henni til að vilja lesa hana sjálfir. Ég valdi mér bókina Snorra-Eddu og undirbjó powerpointsýningu með […]
Aldarafmæli
29 November 2004 | molar | No Comments
Á sama tíma og Thomsenbíllinn skrölti eftir hestaslóðum á Íslandi voru Þjóðverjar komnir nokkrum gírum ofar í þróunarferlinu. Um þessar mundir eru nefnilega hundrað ár liðin síðan fyrsta ökuskírteinið var gefið út af viðeigandi stofnun hér í landi. Þetta kennir manni tvennt:
1. Þjóðverjar stóðu Íslendingum framar í tækniþróunarferlinu. Augljóslega.
2. Þegar nýjungar ná fótfestu í Þýskalandi […]
Fæst orð hafa minnsta ábyrgð
25 November 2004 | molar | 1 Comment
Ég held að flestir Íslendingar í útlöndum eigi það sameiginlegt að tala saman á ástkæra, ylhýra málinu og hafa ekki áhyggjur af því að nokkur gæti skilið þá. Það eru nú ekki nema 300.000 hræður sem tala tungumálið.
Við Andrés erum löngu hætt að passa okkur á því hvað við segjum í lestinni, svo þar er […]
Read ‘Fæst orð hafa minnsta ábyrgð’
Þýskt ástand
24 November 2004 | molar | 3 Comments
Í gamla daga var mér kennt að orðið „mella“ ætti rætur sínar að rekja til þess, að ættingjar vinkvenna franskra sjómanna heyrðu frönskuna á sem íslenskastan máta. Þannig breyttu þeir hinu virðulega „madamúsel“ í „mella“. Berlínskan á orð af mjög svipuðum uppruna.
Eldri Berlínarbúar nota gjarnan orðið „Fisimatenten“ í merkingunni „bull og vitleysa“. „Mach kein Fisimatanten“ […]
Ólögleg
22 November 2004 | molar | 2 Comments
Þremur mánuðum eftir komuna til Þýskalands ber innflytjendum (einsog okkur Rúnu) að skrá sig hjá útlendingaeftirlitinu þýska. Vegna þess hvað skráningarskírteini háskólans létu bíða eftir sér vorum við komin tæpan mánuð framyfir þegar við gerðum okkur ferð í hið valdmannslega Landeseinwohneramt. Þar stóðum við í stuttri röð til að fá úthlutað númerum í lengri röð. […]
Ordnung muss sein!
21 November 2004 | molar | No Comments
Síðustu vikur höfum við heyrt ýmsar grýlusögur um ákveðna embættismenn í Berlínarborg sem tilheyra svokölluðu Ordnungsamti. Hlutverk þeirra er hvorki meira né minna en að gæta þess að röð og regla ríki í borginni. Sést hefur til þessa fólks víða um bæinn þar sem það lítur tortryggilega í kringum sig og athugar hvort þessi eða […]
Frýs í æðum blóð
19 November 2004 | molar | 1 Comment
Mér finnst svolítið fyndið, að þegar hitinn fer í fyrsta skipti upp fyrir 10 gráður á Íslandi á vorin, og sólin skín á milli skýjanna, þá eru alltaf þónokkrir sem streyma á Austurvöll til að njóta blíðunnar. Skjálfandi liggja þeir á stuttermabolunum sínum og brosa yfir sumrinu með sólgleraugun á nefinu.
Hérna er þessu öfugt […]
Búningaþjóðin
18 November 2004 | molar | 3 Comments
Eitt mesta deiluefni Þjóðverja þessa dagana er hvernig lögreglubúningar eiga að vera á litinn. Í Hamborg og nágrenni var nefnilega hinum ótrúlega ljótu grænu/ræpugulu búningum skipt út fyrir bláa um daginn. Í viðtali beindi lögreglustjóri héraðsins orðum sínum að kollegum um allt landið þegar hann sagði: „Bláir búningar eru miklu praktískari. Svo eru þeir rosalega […]
DDR-spilið
16 November 2004 | molar | 1 Comment
Í skólanum undanfarnar vikur höfum við mikið verið að ræða um Austur-Þýskaland (DDR) og lífið þar. Um helgina fengum við nýja sýn á þetta þegar við spiluðum DDR-spilið hjá Elíasi og Marie.
Spilið snýst um það að keppendur eiga að kaupa sér síma, bíl og gerast meðlimir í „flokknum“, en þar sem reynt var að hafa […]
Skitið í skólanum
15 November 2004 | molar | 5 Comments
Í dag neyddumst við til að vera í skólanum mestallan daginn. Fyrir vikið komst ég ekki upp með annað en að skella mér á klóið hér í Freie Universität. Tvennu komst ég að:
Til að spara útgjöld til menntamála kaupa yfirvöld skólans ódýrasta pappírinn á markaðnum, það er eins lags sandpappír. Ekki það huggulegasta á gumpinn […]
Föndrað í sporvagni
15 November 2004 | molar | 1 Comment
Það er misjafnt hvað fólk hefst að til að stytta sér stundir í almenningssamgöngum. Langalgengast er að glugga í dagblað eða bók eða hamast við að leysa heimadæmin sem maður á að skila í fyrsta tíma. Á kvöldin breytist dægradvölin þónokkuð. Þá geymir fólk lesefnið heima en hefur með sér kaldan bjór, enda flestir á […]
Vinnan göfgar
13 November 2004 | molar | 1 Comment
Nú er virkilega gaman í skólanum. Kúrsarnir fyrir útlendinga, sem fjalla um menningu og sögu Berlínar, eru skemmtilegastir, en það er líka komið meira líf í kúrsana innan þýskunnar. Í vikunni höfum við verið að læra rökfræði og stílfræði, sem minnir mig á ljúfa málvísindatímana í MR. Svo erum við að lesa úrval af bókmenntum […]
Örlög ungrar konu
12 November 2004 | molar | 2 Comments
Kannski hlaut að koma að þessu fyrr en síðar. Kannski var þetta óumflýjanlegt í sögulegu samhengi. Ég gat bara ekki látið Andrés vera einráðan á þessu sviði lengur. Hlustað á hann slá um sig með tilvitnunum í klára karla. Horft á hann taka hverja manneskjuna á fætur annarri í gegn með hárbeittum rökum. Heyrt útlærðan […]
Mensuhéri
11 November 2004 | molar | 2 Comments
Rúna hefur ekki málað mjög fagra mynd af Mensunni okkar. Hún hefur hinsvegar verið að sækja í sig veðrið síðustu daga, svo um munar. Eitt hádegið var boðið uppá Prager Schinke (sem svipar mjög til hamborgarhryggs), heitt rauðkál og kartöflur. Svo munaði kokkana ekki um að skella héra á hvers manns disk vikuna eftir. Í […]
Sorgmæddi betlarinn
10 November 2004 | molar | 848 Comments
Í lestakerfi Berlínar úir og grúir af fólki sem slær nokkrar nótur á hljóðfæri og gengur svo um vagninn að biðja um pening. Vinsælt form á þessu er sígaunadúettinn — harmónikka og fiðla. Svo er fulli, berfætti, fúlskeggjaði maðurinn sem segist heita Johnny Cash dáldið fyndinn. Einn þessara fíra er samt erfiðastur fyrir sálina. Það […]
Í hár saman
9 November 2004 | molar | 4 Comments
Eitt af því sem setið hefur á hakanum hjá okkur síðustu vikurnar er að fara í klippingu. Um daginn tók ég af skarið og pantaði tíma fyrir okkur bæði á hárgreiðslustofu rétt handan við hornið.
Við vorum frekar óhrjáleg þegar við komum á stofuna í morgun, ég með mína slitnu enda og Andrés næstum blindur vegna […]
Bíódagar
8 November 2004 | molar | No Comments
Þegar ég var pjakkur og fór með pabba í bíó vorum við alltaf seinastir á svæðið — gjarnan kortéri eftir auglýstan upphafstíma sýninga. „Blessaður vertu, við missum bara af auglýsingunum,“ var staðalviðkvæðið hjá honum ef einhver rak á eftir honum. Pabbi hefði betur búið í Berlín. Þá hefði hann aldrei misst af fyrstu mínútum bíómyndar.
Við […]
Wurstsuppe
7 November 2004 | molar | 2 Comments
Enn heldur forfrömun mín í þýskri matarmenningu áfram. Um helgina gerðum við Rúna okkur ferð til nágrannasmábæjar Berlínar, Königs Wusterhausen. Okkur til mikillar ánægju ákváðu heimamenn að halda uppskeruhátíð sína — sláturhátíðina — sama dag. Hátíðin var reyndar frekar smá í sniðum, einir sjö básar. Til sölu voru hinir ýmsu hlutar dýra auk ýmiskonar unninnar […]
Survivor-stórmarkaðir
5 November 2004 | molar | 3 Comments
Það verður seint af Þjóðverjunum skafið — þeir kunna sko að lífga uppá hversdaginn. Ósköp dæmigerð verslunarferð getur til dæmis snúist uppí hina hörðustu darvinsísku keppni, þar sem hinir sneggstu og sterkustu komast einir af. Leikvangurinn er fábrotinn — kassarnir í Bónusum Þýskalands.
Aðstæður eru þannig að flöturinn sem vörunum er komið á eftir að strikamerki […]
Stúdentaklisjan
3 November 2004 | Uncategorized | 4 Comments
Nú hef ég komist að því — stúdentar eru upp til hópa eins í öllum löndum. Sé ekki að ég þurfi að fara lengra til að slá því föstu. Í tímum með okkur hér í Þýskalandi eru allar týpurnar sem maður þekkir að heiman. Það er stelpan sem glósar með fimm litum og einum yfirstrikunarpenna. […]