Mensuhéri
11 November 2004 | Andrés
Rúna hefur ekki málað mjög fagra mynd af Mensunni okkar. Hún hefur hinsvegar verið að sækja í sig veðrið síðustu daga, svo um munar. Eitt hádegið var boðið uppá Prager Schinke (sem svipar mjög til hamborgarhryggs), heitt rauðkál og kartöflur. Svo munaði kokkana ekki um að skella héra á hvers manns disk vikuna eftir. Í eftirrétt var hægt að fá ljómandi fínt karamellu-/súkkulaðifrauð. Segið svo að mötuneytismatur getir ekki verið dáldið girnilegur:

2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Er þetta úr mötuneytinu?!?! Ég kem með næstu flugvél!!!
þetta lítur bara mjög vel út, vorkenni ykkur ekki neitt að borða þennan herramannsmat.