Örlög ungrar konu
12 November 2004 | Rúna
Kannski hlaut að koma að þessu fyrr en síðar. Kannski var þetta óumflýjanlegt í sögulegu samhengi. Ég gat bara ekki látið Andrés vera einráðan á þessu sviði lengur. Hlustað á hann slá um sig með tilvitnunum í klára karla. Horft á hann taka hverja manneskjuna á fætur annarri í gegn með hárbeittum rökum. Heyrt útlærðan manninn tala um siðfræði í hinu og þessu.
Í dag skráði ég mig í heimspeki sem aukafag.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Jahérna hér, það hlaut að koma að því…! Frábært hjá þér! Ástarkveðjur úr snjónum ;) (er að fara að senda þér email)
úff…farðu nú ekki að reyna að feta í fótspor andrésa, the last thing the world needs is another andrés!! :)