DDR-spilið
16 November 2004 | Rúna
Í skólanum undanfarnar vikur höfum við mikið verið að ræða um Austur-Þýskaland (DDR) og lífið þar. Um helgina fengum við nýja sýn á þetta þegar við spiluðum DDR-spilið hjá Elíasi og Marie.
Spilið snýst um það að keppendur eiga að kaupa sér síma, bíl og gerast meðlimir í „flokknum“, en þar sem reynt var að hafa aðstæðurnar sem líkastar lífinu í DDR gátu tvö fyrstu atriðin tekið afar langan tíma. Svo flæktust ýmsar freistingar fyrir manni, til dæmis þurfti Andrés að sitja hjá eina umferð því hann vildi bíða í langri röð eftir gallabuxum, sem erfitt var að nálgast á þeim tíma. Ekki bætti það úr skák að einn spilafélaganna var meðlimur í Stasi og hafði gætur á að manni gengi ekki of vel að pluma sig undir þessum kringumstæðum.
Ég hefði staðið mig vel í DDR. Náði að kaupa bíl og síma á mettíma, greiddi mín félagsgjöld í „flokkinn“ og lét það ekki á mig fá þótt Stasi sendi mig í fangelsi. Enda komst ég fyrst allra í mark.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Hey, þetta spil hljómar aldeilis vel. Já, mikið saknar maður múrsins og þess alls; those were the days!