Búningaþjóðin

18 November 2004 | Andrés

Eitt mesta deiluefni Þjóðverja þessa dagana er hvernig lögreglubúningar eiga að vera á litinn. Í Hamborg og nágrenni var nefnilega hinum ótrúlega ljótu grænu/ræpugulu búningum skipt út fyrir bláa um daginn. Í viðtali beindi lögreglustjóri héraðsins orðum sínum að kollegum um allt landið þegar hann sagði: „Bláir búningar eru miklu praktískari. Svo eru þeir rosalega lekkerir (hann notaði þýska orðið „schick“).“ Forsíða stærsta Berlínarblaðsins var undirlögð í dag — lesendum býðst þar að taka þátt í símakosningu, sem væntanlega verður notuð til að þrýsta á stjórnvöld um úrbætur.

Er það nema von að nasistar hafi náð eins langt hér í landi og raun bar vitni? Þjóðin slefar ennþá yfir smart búningum.


Forsíða BZ í morgun


Hamingjusamir (enda bláklæddir) lögregluþjónar í Hamborg.

3 Comments

  1. Kristinn said on 18 Nov 2004 at 23:28:

    Jeminn, held ég sé í vitlausu landi, hér í Limburgh er aðalbúningaáhugi manna kanínubúningarnir sem þeir skarta á karnival og við til 10-12 önnur tilefni árið um kring. Ætti mun betur við mig að spá í júniformum opinbera starfsmanna í Þýskalandi – þeir eru nú soldið smart grænu gallarnir eins og í Derrik forðum.

  2. ingveldur said on 19 Nov 2004 at 03:20:

    veit nú ekki hvort er betra, finnst þeir óþarflega frjálslegir í nýju búningunum. Hef reyndar á tilfinningunni að gömlu búningarnir stingi eins og ullarbolur. Hvernig væri að hafa þá með nýja sniðinu en ennþá græna á litin, það yrði flott.

  3. Ágústa said on 19 Nov 2004 at 16:49:

    Takið eftir óhlutleysinu á fyrri myndinni: Lögreglumaðurinn í gamla búningnum er fremur óheppinn í andliti og stendur eins og honum sé mál og er á allan hátt frekar ólánslegur á meðan sá í nýja búningnum er bæði myndarlegur og ber sig vel (ég myndi allavega ekki sparka honum framúr rúminu eins og við systur segjum stundum) … hmmmmm!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.