Ordnung muss sein!

21 November 2004 | Rúna

Síðustu vikur höfum við heyrt ýmsar grýlusögur um ákveðna embættismenn í Berlínarborg sem tilheyra svokölluðu Ordnungsamti. Hlutverk þeirra er hvorki meira né minna en að gæta þess að röð og regla ríki í borginni. Sést hefur til þessa fólks víða um bæinn þar sem það lítur tortryggilega í kringum sig og athugar hvort þessi eða hinn hluturinn geti haft óæskileg áhrif á samfélagið.

Í vikunni sat ég á kaffihúsi og fékk mér morgunmat. Þar sem ég sat við gluggann sá ég tvær konur á miðjum aldri nálgast hurðina á kaffihúsinu með áhyggjusvip. Lengi stóðu þær fyrir utan, opnuðu og lokuðu, og að því er virðist komust að þeirri niðurstöðu að það væri bara allt í lagi með blessaða hurðina. Þegar þær komu inn sá ég í fyrsta skipti stóra bókstafina á bakinu þeirra: „Ordnungsamt“. Þjakaðar af ábyrgðinni sem hvílir á herðum þeirra báðu þær þjóninn um eitthvað plagg. Sá snerist á hæl og sótti plaggið meðan hann ranghvolfdi í sér augunum. Reyndar voru flestir gestirnir með svipaðan svip, hæðnisglott eða flissandi. Á meðan skoðuðu þær búlluna í krók og kima. Þjóninn kom sigri hrósandi með blað í höndunum, sem hefur líklega verið einhver brunavarnaáætlun eða leyfi. Konugreyin kvöddu með virktum og héldu alvörugefnar út í óvissuna.

Mikið er gott að það er fólk í þessari borg sem sér til þess að maður hengi sig ekki í hurðarhúni eða detti um ruslafötu.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.