Ólögleg

22 November 2004 | Andrés

Þremur mánuðum eftir komuna til Þýskalands ber innflytjendum (einsog okkur Rúnu) að skrá sig hjá útlendingaeftirlitinu þýska. Vegna þess hvað skráningarskírteini háskólans létu bíða eftir sér vorum við komin tæpan mánuð framyfir þegar við gerðum okkur ferð í hið valdmannslega Landeseinwohneramt. Þar stóðum við í stuttri röð til að fá úthlutað númerum í lengri röð.

Þegar langa röðin var á enda lögðum við öll skjöl á borðið fyrir konu í glerbúri sem leit hissa á okkur og sagðist ekki eiga tíma fyrir okkur strax, en við mættum panta viðtal. „Fínt, hvenær gæti það verið?“ spurðum við og fengum svar sem hlaut að vera grín, “í janúarlok.“ En konunni var dauðans alvara. Við þurftum að bíða tæpa þrjá mánuði til viðbótar, þar með komin langt yfir löglegan frest. „Er það ekkert vandamál,“ spurðum við.

Konan leit á stúdentaskírteinin, leit á okkur og sagði að ekkert lægi á. Eitthvað segir mér að viðmótið hefði verið annað hefðum við verið svört, tyrknesk eða austurevrópsk.

2 Comments

  1. Mabbý said on 22 Nov 2004 at 22:15:

    Af hryllingi við tilhugzunina, frá síðustu dvöl minni í hinni frjálzu borg, um anmeldungsprósessinn sem samanstóð af endalausum biðröðum eldsnemma á morgnana í heila viku, þessi stimpill þurfti að vera 24 klst gamall og hvert amt var bara opið í 2 tíma á dag…og oftar en ekki lokað á nefið á mér…á þröngum göngunum var reykt í þokkabót… ég var nánast komin að því að yfirgefa þetta bljúga búrókratízka land eftir þessa hryllilegu viku…ég dró það líka á langinn að anmelda mig núna…en þýzka búrokratían hefur batnað til muna á 7 árum..kom mér skemmtilega á óvart…tók mig allt saman tíu mínútur og fékk mitt dvalar og atvinnuleyfi afhent með brosi á vör :-)

  2. eliasingi said on 24 Nov 2004 at 18:52:

    Hvað er þetta “eitthvað” sem segir þér að viðbrögðin hefðu verði önnur ?

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.