Slegið í gegn

30 November 2004 | Rúna

Fimmtudagurinn síðasti hafði hangið svolítið yfir mér dagana á undan. Þetta var nefnilega dagurinn sem við áttum að flytja fyrirlestur í tíma. Verkefnið var einfalt — að kynna bók fyrir samnemendum sínum, þannig að þeir hrifust nógu mikið af henni til að vilja lesa hana sjálfir. Ég valdi mér bókina Snorra-Eddu og undirbjó powerpointsýningu með teikningum af nokkrum helstu hetjunum úr Ásgarði.

Á undan Andrési í röðinni voru þrír Þjóðverjar sem fluttu óskaplega langar, hásperrtar framsögur um stórar, merkilegar bækur. Svo kom útlendingurinn Andrés og kveikti á tölvunni sinni, tengdri við skjávarpa. Myndefni var algjör nauðsyn, þar sem til umfjöllunar var lítil teiknimyndabók, Mister O.

Á tæpum fimm mínútum afgreiddi hann litla spýtukallinn O sem myndhverfingu fyrir hvert okkar og ævintýri hans væru í raun leiðarvísir fyrir líf okkar. Fólk bókstaflega grét úr hlátri, því bókin er mjög fyndin og Andrés náttúrulega líka. Að framsögunni lokinni voru umræður, þar sem samnemendurnir okkar áttu að segja hvað hefði gengið vel og hvað illa. Þeir sem höfðu verið á undan Andrési fengu oft nokkuð slæma útreið í síðari hlutanum, þannig að ég krosslagði fingurna undir borðinu.

Ég hefði ekki þurft að gera það. Krakkarnir voru á einu máli um að framsagan hefði verið „super toll“ og að það væri snilld að mæta í háskóla með kynningu á teiknimyndum. Eftir þessar lofræður höfðu þau gjörsamlega ekkert að segja um hvað hann mætti bæta, svo hrifin voru þau.

Því miður var tíminn á enda eftir þetta, svo ég og flestir aðrir komumst ekki að með sínar framsögur. En það var allt í lagi, því ég held að Andrés hafi reddað almenningsálitinu í okkar garð út skólagönguna. Nú eru allt í einu allir orðnir miklu vingjarnlegri og keppast um að sitja hjá okkur í tímum.

1 Comment

  1. ingveldur said on 30 Nov 2004 at 23:13:

    Til hamingju, ég vissi að þú yrðir vinsæll í Þýskalandi eins og annarsstaðar. Og Rúna til hamingju með að eiga þennan mann að manni. Vona að þinn fyrirlestur eigi eftir að ganga jafn vel.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.