Archives for December 2004

Fimm milljónir

31 December 2004 | molar | 4 Comments

Íslenska ríkið, sem í eru nærri þrjúhundruðþúsund manns, veitir jafnhárri upphæð til flóðarsvæðanna við Indlandshaf og fílharmóníusveit Berlínar, sem varla telur meir en hundrað manns (sjá fréttatilkynningu. Miðað við höfðatölu, hvað?

Read ‘Fimm milljónir’

Árslistinn, þriðji hluti

30 December 2004 | molar | 56 Comments

Drykkur ársins er búinn til úr grasi. Einsog beljurnar jórtra. Staðurinn sem býður uppá hann ræktar sitt eigið gras, sem síðan er verkað með þar til gerðri maskínu fyrir lystuga. Þeir sem ekki ráða við grasseyðið óblandað geta fengið það blandað til helminga við eplasafa, með sneiðum af ferskum, rauðum chilipipar útí. Þessi skyndibitastaður á [...]

Read ‘Árslistinn, þriðji hluti’

Árslistinn, annar hluti

29 December 2004 | molar | 1 Comment

Sælgæti ársins er engifergúmmí sem fæst í flestum kínabúðum Berlínar. Fyrsta smakk er sætt og mjúkt, fyrsta tygg lætur munninn svo loga. Eftirbragðið grætir mann.

Read ‘Árslistinn, annar hluti’

Árslistinn, fyrsti hluti

28 December 2004 | molar | No Comments

Vörumerki ársins er í eigu bjórframleiðandans Berliner Kindl, en það er ungabarn í bjórglasi:

Read ‘Árslistinn, fyrsti hluti’

Svona voru jólin…

26 December 2004 | molar | No Comments

Nú eru hájólin að renna sitt skeið, sem sést á því að við erum farin að hugsa til næstu hátíðar — áramótanna. Á aðfangadag stóð ég sveittur í eldhúsinu og eldaði andabringur ofaní mannskapinn. Það var enginn smáfjöldi þetta árið — auk okkar Rúnu voru við borðið bræður mínir tveir, þeir Hannes og Einar, og [...]

Read ‘Svona voru jólin…’

Jól 2004

23 December 2004 | molar | 3 Comments

Read ‘Jól 2004’

Fertugsafmæli þjóðarréttar

22 December 2004 | molar | 3 Comments

Meðal ástsælustu matvæla Þjóðverja er viðbitið Nutella. Um þessar mundir fagnar framleiðandi þess 40 ára afmæli með því að setja hátíðarútgáfu á boðstólana. Áhugasamir neytendur geta þannig, svona rétt fyrir jólin, leyft sjálfum sér að kaupa Nutella í tveggja lítra afmælisdunkum. Hvort brauð heimsins nægi undir allt klístrið er svo annað mál.

Read ‘Fertugsafmæli þjóðarréttar’

Ammæli

20 December 2004 | molar | 4 Comments

Á laugardagskvöldið var mikið um dýrðir í Dunckerstrasse. Berlínarbúandi vinum okkar var boðið til veislu og tilefnið var 25 ára afmæli Rúnu Vigdísar, sem er nú reyndar ekki fyrr en í dag. Í veislunni komst ég að því að það boðar mikla ógæfu í Þýskalandi að fagna afmæli áður en sjálfur dagurinn rennur upp. En [...]

Read ‘Ammæli’

Komin í fríið

17 December 2004 | molar | 1 Comment

Hátíðin byrjar með trompi. Síðustu tímana fyrir frí hafa prófessorarnir notað til að skapa stemningu, þó ekki til upplyftingar. Í gær var kafað djúpt ofaní SS-sveitirnar og í dag sáum við myndbandið „Berlín í rúst“, sem fjallar um hversu slæmt lífið var í borginni rétt eftir stríð. Núna höfum við nokkrar vikur til að velta [...]

Read ‘Komin í fríið’

Free Bobby Fisher

16 December 2004 | molar | 3 Comments

Þetta hlýtur að sitja í íslenskri þjóðarsál. Fyrst Free Willy, svo Free Bobby Fisher. Vonandi að kallinn verði samt ekki sendur í fragt einsog Keikó.

Read ‘Free Bobby Fisher’

Próffiðringur

15 December 2004 | molar | 1 Comment

Nú er síðasta skólavika fyrir jól hálfnuð og flestir eru í voða góðu skapi. Kennarar og nemendur óska hver öðrum gleðilegra jóla og góðs frís og eru aðeins vingjarnlegri en venjulega. En þegar maður er í háskóla er desember ekki bara mánuður jólanna heldur jólaprófanna. Í gær fór ég í eitt slíkt. Verið var að [...]

Read ‘Próffiðringur’

Fíflin, samnemendur okkar

15 December 2004 | molar | 2 Comments

Í miðri kennslustund í gær tilkynnti kennarinn okkur að hann ætlaði að víkja af fundi. Nokkrir samnemendur okkar vildu nefnilega halda málþing um hversu illa tíminn væri skipulagður, hvernig kennsluháttum kennarans væri ábótavant og gera tillögur að úrbótum. Okkur þótti undarlegt að fólk gæti ekki bara gert þetta í sínum eigin tíma, en létum tilleiðast. [...]

Read ‘Fíflin, samnemendur okkar’

Útrás kvikmyndanna

14 December 2004 | molar | 2 Comments

Við hliðiná okkur er vídjóleigan Negativeland sem sérhæfir sig í „off-video“ — sumsé spesmyndum. Á topp-tíu listanum þeirra þessa dagana eru, einsog við er að búast, myndir einsog Kill Bill (bæði hluti 1 og 2) og Lost in Translation. Hinsvegar kemur á óvart að tvö sæti listans verma íslenskar myndir — 101 Reykjavík og Nói [...]

Read ‘Útrás kvikmyndanna’

Töfraklefinn

13 December 2004 | molar | 4 Comments

Aðfaranótt sunnudags varð ég fyrir mjög skemmtilegri reynslu. Ég fór á djammið með Sunnu og Jónu og áður en við kíktum á staði drógu þær mig í myndatöku með sér. Myndaklefinn, staðsettur við Rosenthaler Platz lestarstöðina, lætur lítið fyrir sér fara. Þetta er svona gamaldags klefi, algjörlega laus við myndir af konum í bleikum peysum [...]

Read ‘Töfraklefinn’

Skreytum hús með grænum greinum

12 December 2004 | molar | No Comments

Heima hjá mér erum við vön að skreyta jólatréð á Þorláksmessu. Við drekkum heitt súkkulaði og borðum hangikjöt, skellum skrauti á tréð og lesum jólakortin. Í ár er jólatréð okkar svo flott að það var hreinlega ekki hægt að bíða þangað til á Þorláksmessu. Þegar Elías og Marie voru í heimsókn hjá okkur í vikunni [...]

Read ‘Skreytum hús með grænum greinum’

Er fall fararheill?

10 December 2004 | molar | No Comments

Sum orð búa yfir svo mikilli sögu að jaðrar við að þau séu ónothæf. Ætli séu til dæmis ekki allir sem báru ættarnafnið Hitler búnir að skipta um nafn síðan Adolf kallinn var og hét? Samt láta ekki allir sér segjast. Til dæmis ber nokkuð stór þýsk ferðaskrifstofa nafnið Titanic — nafn sem ég hefði [...]

Read ‘Er fall fararheill?’

Kennslumútur

8 December 2004 | molar | 5 Comments

Háskóli er öðruvísi en skólar á öðrum námsstigum. Hegðun nemenda helst ekki óbreytt frá sex ára bekk uppí doktorsnám. Þessi almennu sannindi eiga nú undir högg að sækja í þýskukúrsi sem ég sit í berlínskum háskóla. Þannig er mál með vexti, að einhverjir afburðarduglegir nemendur ákváðu að námskeiðið skipti svo ótrúlega miklu máli að ekki [...]

Read ‘Kennslumútur’

Hvenær er maður piltur?

6 December 2004 | molar | 3 Comments

Blaðamaðurinn hrs á tvö forvitnileg innlegg í Sunnudagsfréttablaðinu, ekki vegna innihalds heldur vekja þau mann til umhugsunar um orðnotkun. Fyrra dæmið er forsíðufrétt um dauðsfall á Sauðárkróki, en þar segir blaðamaður að „[p]iltur um tvítugt“ hafi farist í bruna. Síðari greinin er á síðu 4 og lýsir dómi sem féll í Héraðsdómi yfir tveimur mönnum [...]

Read ‘Hvenær er maður piltur?’

Árás

5 December 2004 | molar | No Comments

Rétt er að biðja fasta lesendur afsökunar á kommentaflóðinu sem drekkti síðunni um helgina. Einhver lúðinn notaði föstudagskvöldið til að senda á fjórða þúsund athugasemda á keinbetreff, til að auglýsa póker og álíka. Trúið mér, ég blótaði honum í sand og ösku.

Read ‘Árás’

Prófessorinn rokkar

5 December 2004 | molar | 1 Comment

Prófessorapartíið á föstudaginn var hrein snilld. Við mættum á heimili Herr Doktor Frank Stucke með skinkuhorn og góða skapið og fengum sko aldeilis veitingar. Á boðstólnum var matur eins og hver gat í sig látið og góður lager af rauðvíni, hvítvíni og bjór. Í ljós kom að Herr Stucke er mikill tónlistarunnandi og geisla- og [...]

Read ‘Prófessorinn rokkar’