Skreytum hús með grænum greinum

12 December 2004 | Rúna

Heima hjá mér erum við vön að skreyta jólatréð á Þorláksmessu. Við drekkum heitt súkkulaði og borðum hangikjöt, skellum skrauti á tréð og lesum jólakortin.

Í ár er jólatréð okkar svo flott að það var hreinlega ekki hægt að bíða þangað til á Þorláksmessu. Þegar Elías og Marie voru í heimsókn hjá okkur í vikunni læddist Andrés niður í kjallara og sótti tréð okkar, sem beið eftir því að vera tekið úr kassanum og fá að njóta sín.

Ég hitaði jólaglögg og skellti jólasveinahúfum á liðið. Síðan var hafist handa við að rétta úr trénu og skreyta undir ljúfum tónum jólanna.

Tréð er svakalegt. Það er silfurlitað, með hvítri ljósaseríu og litlum diskókúlum í öllum regnbogans litum. Og nú höfum við 25 daga í viðbót til að njóta þess.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.