Töfraklefinn
13 December 2004 | Rúna
Aðfaranótt sunnudags varð ég fyrir mjög skemmtilegri reynslu. Ég fór á djammið með Sunnu og Jónu og áður en við kíktum á staði drógu þær mig í myndatöku með sér.
Myndaklefinn, staðsettur við Rosenthaler Platz lestarstöðina, lætur lítið fyrir sér fara. Þetta er svona gamaldags klefi, algjörlega laus við myndir af konum í bleikum peysum og með permanent. Kassinn ku taka myndir af hverjum sem er og gera það einstaklega vel. Ég hafði mínar efasemdir um að hann gerði mig að einhverju súpermódeli, enda hef ég frekar slæma reynslu af svona klefum, en lét samt til leiðast.
Hver í sínu lagi skelltum við okkur í klefann og brostum sætt framan í myndavélina. Meðan við biðum eftir myndunum spjölluðum við við tvær stelpur sem voru á undan okkur í röðinni. Þær fara alltaf í kassann áður en þær fara á djammið því það er svo gott fyrir sjálfsálitið. Á meðan myndaðist röð fyrir aftan okkur í þetta vinsæla tæki.
Þegar myndirnar mínar komu ætlaði ég varla að trúa mínum eigin augum. Þvílík fegurðadís! Þær voru svo fínar að ég ákvað að láta þær fljóta með jólapakkanum til Andrésar.
Morguninn eftir var ég enn svo roggin að ég gat ekki setið á mér að sýna Andrési. Nú liggja þær á náttborðinu hans og ég má til með að líta á þær nokkrum sinnum á dag til að dást að sjálfri mér.
4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
ég skil ég skil…. ég er alltaf ad skoda mínar myndir;)
Hvernig væri að skella nú fegurðardísinni á netið, ég er alveg búin að gleyma hvernig þú lítur út…. Og trénu!! maður lifandi, mig langar rosalega í svona tré…. silfur með diskókúlum… algjört drauma tré. ég er bara með eina lásí diskókúlu á mínu aspargreinaríblómavasajólatré…
Hurru ég verð að skella mér þangað fyrir heimför, ekki ónýtt að fara í professional kassa í deutschlandinu!
og við búin að skoða flugeldana við Brandenborgarhliðið áttum við leið fram hjá fræga passamyndasjálfsalanum. Úr varð að við skelltum okkur saman í kassann [...]