Fíflin, samnemendur okkar

15 December 2004 | Andrés

Í miðri kennslustund í gær tilkynnti kennarinn okkur að hann ætlaði að víkja af fundi. Nokkrir samnemendur okkar vildu nefnilega halda málþing um hversu illa tíminn væri skipulagður, hvernig kennsluháttum kennarans væri ábótavant og gera tillögur að úrbótum. Okkur þótti undarlegt að fólk gæti ekki bara gert þetta í sínum eigin tíma, en létum tilleiðast.

Þessar umræður kristölluðu dáldið hvað ég á erfitt með að skilja þýska stúdenta. Í haust tökum við tvo kúrsa í aðalfaginu okkar — þeir bera nöfnin Modul 1 og Modul 2. Undan þeim fyrri var kvartað. Snöggur samanburður á kúrsunum gæti litið svona út:
Modul 1. Kenndur af konu um þrítugt. Í annarri viku var hún búin að læra nöfn okkar allra. Hún dreifir ítarlegum blöðum í byrjun hvers tíma, með punktum úr efninu, til að auðvelda manni að fylgjast með, notar glærur og skjávarpa. Að auki heldur hún úti heimasíðu með viðbótarefni.
Modul 2. Kenndur af karli um sextugt. Honum gæti ekki verið meira sama hvað við heitum. Eftir mikla harmkvæli fékkst hann til að útbúa dreifirit, sem eru með þeim lélegustu sem sést hafa, og nægja sjaldnast í allan hópinn. „Fyrirlestra“ sína les hann uppúr bók, aðferð sem ég hélt að hefði hætt að vera í tísku uppúr 1920.

Þegar ég benti samnemendum okkar á, að kvartanir þeirra yfir Modul 1 mætti jafnvel frekar bera upp í tengslum við Modul 2 ráku flestir upp stór augu. Karlinn nýtur einhverra hluta vegna mun meiri hylli en konan — virkar kannski fræðimannslegri. Fyrir vikið hefur hann, á þeim tveimur mánuðum sem liðnir eru af misserinu, náð að verða (óverðskuldað) ósnertanlegur.

2 Comments

  1. ingveldur said on 15 Dec 2004 at 16:28:

    ó hvað ég verð reið þegar ég les um svona óréttlæti. Gott að þið létuð í ykkur heyra…kunna þessir þjóðverjar ekkert gott að meta.

  2. Karen said on 15 Dec 2004 at 20:50:

    Usss…… mér er að farið að líka afar illa við þýska stúdenta

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.