Próffiðringur
15 December 2004 | Rúna
Nú er síðasta skólavika fyrir jól hálfnuð og flestir eru í voða góðu skapi. Kennarar og nemendur óska hver öðrum gleðilegra jóla og góðs frís og eru aðeins vingjarnlegri en venjulega.
En þegar maður er í háskóla er desember ekki bara mánuður jólanna heldur jólaprófanna. Í gær fór ég í eitt slíkt. Verið var að prófa efni úr kúrsi sem fjallar um viðbrögð bókmenntaheimsins við falli múrsins og sameiningu Þýskalands. Ég var búin að vera nokkuð dugleg að læra fyrir prófið og samviskusöm í vetur svo ég kveið ekkert mikið fyrir. Ég held að þetta hafi bara komið ágætlega út hjá mér. Ég skrifaði a.m.k. allan tímann og hef aldrei þurft að skrifa á þýsku áður undir þvílíkri pressu. Svo hef ég ekki tekið próf, ef frá eru talin stöðupróf í þýsku, síðan vorið 2001, og það er ekki laust við að mér hafi þótt gaman að finna spennuna á ný.
Frá föstudeginum kl. 16 verðum við frjáls eins og fuglinn í rúmlega tvær vikur. Eins gott, því nóg er að gera. Fyrst þarf að undirbúa afmælispartí á laugardagskvöldið. Svo taka jólin við í næstu viku og allt sem þeim fylgir. Við erum svo heppin að fá tvo íslenska jólasveina til að eyða þeim með okkur, þá Hannes og Einar, bræður hans Andrésar. Það verður því mikið fjör á Dunckerstrasse 12 næstu vikurnar.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Eruð þið skötuhjúin ekki með neitt heimilisfang?