Komin í fríið

17 December 2004 | Andrés

Hátíðin byrjar með trompi. Síðustu tímana fyrir frí hafa prófessorarnir notað til að skapa stemningu, þó ekki til upplyftingar. Í gær var kafað djúpt ofaní SS-sveitirnar og í dag sáum við myndbandið „Berlín í rúst“, sem fjallar um hversu slæmt lífið var í borginni rétt eftir stríð. Núna höfum við nokkrar vikur til að velta þessari píslargöngu þýsku þjóðarinnar fyrir okkur, sem er kannski viðeigandi um jólin…

1 Comment

  1. Ágústa said on 20 Dec 2004 at 09:57:

    Þetta er réttin andinn Andrés (andinn Andrés … hahahaha). Nú skaltu taka hitann af íbúðinni og leggjast til svefns á köldu gólfinu með götótta peysu, hneppta að framan, sem yfirbreiðslu/kodda. (Ekki spyrja hvers vegna ég sé þetta fyrir mér þegar ég hugsa um píslargöngu þýsku þjóðarinnar, ég veit það ekki sjálf og það hræðir mig ögn …)

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.