Ammæli
20 December 2004 | Rúna
Á laugardagskvöldið var mikið um dýrðir í Dunckerstrasse. Berlínarbúandi vinum okkar var boðið til veislu og tilefnið var 25 ára afmæli Rúnu Vigdísar, sem er nú reyndar ekki fyrr en í dag. Í veislunni komst ég að því að það boðar mikla ógæfu í Þýskalandi að fagna afmæli áður en sjálfur dagurinn rennur upp. En gestirnir létu engan bilbug á sér finna og voru kátir.
Boðið var upp á ýmiss konar veitingar, svo sem strúts- og kalkúnabringuspjót og pinnamat. Til að væta kverkarnar var dýrindis berjabolla í boði og baðkarið fyllt af bjórflöskum.
Veislugestir voru örlátir á gjafir og þyrstir mjög, svo að þetta varð hið besta afmælispartí. Nágrannarnir kvörtuðu ekki einu sinni, ólíkt því sem var í síðustu afmælisveislunni minni.
Í dag er stelpan orðin kona, eða konan orðin kerling. Þegar ég var lítil fannst mér 25 ár vera ansi hár aldur. Nemandi minn var einu sinni að vandræðast með hvort ég væri kona eða stelpa, og kom þá í ljós að hann teldi stelpu vera orðna konu ef hún væri komin með mann.
Ég hef engar áhyggjur af því að vera orðin kona. Það er gaman að vera kona í Berlín. Andrés er búinn að stjana við mig í dag, sem aðra daga, og í kvöld ætlum við að fá okkur japanskan mat. Ekki séns að ég kvarti. Ekki fyrr en ógæfan ríður yfir.
Áhugasamir geta notið þess að skoða eftirfarandi myndir.








4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Hjartans hamingjuóskir Rúna mín. Það er fínt að vera 25 ára en ósköp finnst mér stutt síðan það var. Ég get því hrætt þig með því að þú verður orðin þrítug áður en þú veist af.
Til Hamingju með afmælið Rúna mín! Vonandi áttirðu góðann dag! Að vera 25 er ekki eins slæmt eins og það hljómar… mér líður ennþá eins og ég sé 18… Vona að þú hafir fengið bréfið/pakkann frá mér í tæka tíð ;)
Til hamingju!! Var með ykkur í anda. Ísland er skítkaldara en Berlín, en annars væsir ekki um okkur, situm bara innandyra og snæðum mat, úðum í okkur blandi í poka og glápum á sjónvarp sem við skiljum eitthvað í. Úti er vissulega kalt, en það er heitt í faðmi fjölskyldunnar.
Til hamingju með afmælið!