Fertugsafmæli þjóðarréttar
22 December 2004 | Andrés
Meðal ástsælustu matvæla Þjóðverja er viðbitið Nutella. Um þessar mundir fagnar framleiðandi þess 40 ára afmæli með því að setja hátíðarútgáfu á boðstólana. Áhugasamir neytendur geta þannig, svona rétt fyrir jólin, leyft sjálfum sér að kaupa Nutella í tveggja lítra afmælisdunkum. Hvort brauð heimsins nægi undir allt klístrið er svo annað mál.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Nutella er ljúfmeti. Á pönnukökur, beint úr krukkunni, með bönunum, með brauði og svo mætti lengi telja.
Ég fæ hroll við að hugsa um tvö kíló af Nutella.
Takk fyrir að eyðileggja daginn.
Mú ha ha
mér finnst nutella dásamlegt. gæti léttilega stútað 2 kg. með skeið. eigiði nutelluleg jól úti!