Svona voru jólin…
26 December 2004 | Andrés
Nú eru hájólin að renna sitt skeið, sem sést á því að við erum farin að hugsa til næstu hátíðar — áramótanna. Á aðfangadag stóð ég sveittur í eldhúsinu og eldaði andabringur ofaní mannskapinn. Það var enginn smáfjöldi þetta árið — auk okkar Rúnu voru við borðið bræður mínir tveir, þeir Hannes og Einar, og Stefán, formaður Íslendingafélagsins.
Þetta eru fyrstu jólin sem við bræðurnir höfum átt saman svona foreldralausir, og þar með fyrstu barnalausu jólin hennar mömmu í aldarfjórðung. Sem betur fer gátum við, með liðstyrk nýjustu tækni, séð snoppuna á gömlu í gegnum tölvu rétt áðan. Það er þó aðeins í áttina.
Gleðilega rest!
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.