Fimm milljónir
31 December 2004 | Andrés
Íslenska ríkið, sem í eru nærri þrjúhundruðþúsund manns, veitir jafnhárri upphæð til flóðarsvæðanna við Indlandshaf og fílharmóníusveit Berlínar, sem varla telur meir en hundrað manns (sjá fréttatilkynningu.
Miðað við höfðatölu, hvað?
4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
þeir þykjast reyndar ætla að veita meira… þessari upphæð hent fram áður en umfang flóðanna var fyllilega ljóst.. or so they say.
Þeim sem eru óhressir með lágt framlag ríkisins til hamfarasvæðanna er einfaldlega bent á söfnunarsímann 9072020 til að gefa meira, ríkisframlag er ekki eina leiðin til að styrkja bágstadda. Þannig er nú eðli frjálsra framlaga, fólk getur dregið sjálft upp heftið hafi það áhuga á. Við höfum hins vegar ekkert um það að segja ef Geir Haarde dregur upp veskið og því er rétt að hann reyni heldur að halda aftur af sér en hitt.
Gleðilegt ár Andrés krútt :)
Mikið hrikalega er ég ósammála Svenna um að einhverjar voðalegustu náttúruhamfarir síðustu ára séu Geir Haarde og öðrum fjármálaráðherrum óviðkomandi eða því sem næst. Það er öðru nær, og íslenska ríkið á að skammast til að styðja hjálpar- og viðreisnarstarf með rausnarlegum hætti. Og kannski að láta framlagið koma niður þar sem þess er í raun og veru þörf en ekki endilega með því að transporta með þegna eins auðugasta ríkis heims — maður hefði ætlað að Svíar gætu séð um sína. En það er auðvitað rétt að við hin eigum að galopna veskin líka.