Archives for December 2004
Gísli á Uppsölum gengur aftur
5 December 2004 | molar | No Comments
Eitt námskeiðið hjá okkur er mjög fyndið. Meðal samnemenda okkar eru óborganlegir karakterar, t.d. rauðhærði strákurinn, sem spyr alltaf kjánalegra spurninga og réttlætir svo alltaf að hann hafi verið að spyrja, og síðhærði strákurinn, sem veit allt betur en aðrir. Síðasti tími var ekki bara fyndinn, heldur var hann eins og einn af betri Fóstbræðraþáttunum. [...]
Read ‘Gísli á Uppsölum gengur aftur’
Stofnanaskemmtanir
3 December 2004 | molar | No Comments
Sendiráðspartíið á miðvikudaginn tókst með prýðum. Sendiherrann var nýlentur og debúteraði hjá berlínskum Íslendingum þetta kvöldið. Til að halda dampi ætlum við Rúna í annað partí á vegum stofnunar í kvöld. Einn prófessorinn okkar, lítill kall sem vikulega kynnir okkur menningarmál þriðja ríkisins, hefur nefnilega þann góða sið að kaupa snittur og rauðvín og bjóða [...]
Slagorð í breyttum heimi
3 December 2004 | molar | 3 Comments
Í nótt dreymdi mig konu sem talaði um hryðjuverkaárásirnar 11. september en notaði til þess hugtakið Seven-Eleven. Ef þetta er ekki klassadæmi um undirmeðvitundina að benda manni á að slagorðasmíð og ímyndarvinna í kringum „stríðið gegn hryðjuverkum“ séu komin útí öfgar, þá veit ég ekki hvað.
Read ‘Slagorð í breyttum heimi’
Jólasveinar gang’um gólf
2 December 2004 | molar | No Comments
Craig, vinur okkar hér í Berlín, heldur úti ljómandi skemmtilegri heimasíðu, Flip Flop Flyin’. Fyrir hver jól gerir hann eitthvað nýtt og sniðugt, lesendum síðunnar til skemmtunar. Þetta árið urðu íslensku jólasveinarnir honum innblástur til að bæta þrettán jólauglum, „Yuletide Owls“, á jólasíðuna sína.
Read ‘Jólasveinar gang’um gólf’
Fullveldisdagur
1 December 2004 | molar | 2 Comments
Ég man ekki eftir því að hafa nokkurn tímann séð ástæðu til að halda sérstaklega uppá fyrsta desember. Það mun ég gera í fyrsta sinn í dag, og af góðri ástæðu. Sendiráðið býður nefnilega til kvöldverðarhlaðborðs, sem í mínum bókum er rífleg ástæða til að gleðjast.
Breytt heimsmynd
1 December 2004 | molar | No Comments
Öryggisráðstafanir í kringum bandarísk sendiráð eftir 11. september 2001 hafa víðs vegar valdið heimamönnum miklum óþægindum. Mér þætti til dæmis ekkert sérstaklega gaman að búa við Laufásveginn þegar löggan lokar götunni. Hér í borg stendur sendiráðið við (fyrrum) mikla umferðargötu, sem í þrjú ár hefur verið full af þungvopnuðum lögreglumönnum sem koma í veg fyrir [...]