Archives for January 2005
Der Wikinger
31 January 2005 | molar | 2 Comments
Um helgina tókum við þátt í menningarlegu magasínprógrammi allra berlínskra safna — löngu nótt safnanna. Þar sem við vorum að koma okkur á milli löggusafnisins og samskiptasafnsins rákumst við á vígalegan mann með skjöld, sleggju og bjór í stærðarinnar horni. Á svæðið var mættur þýskur víkingur! Af öllum lestum í öllum heiminum settist hann náttúrulega [...]
Morgunstund gefur gull í mund
27 January 2005 | molar | 1 Comment
Síðustu tvær vikur hafa öll met verið slegin hvað varðar fótferðatíma. Ég hef nefnilega komið mér fram úr um eða fyrir átta hvern einasta virka dagán þess að þurfa að mæta í skólann fyrir tólf. Geri aðrir betur. Reyndar gerir Andrés betur. Hann er nefnilega alltaf búinn að koma sér úr húsi um svipað leyti. [...]
Read ‘Morgunstund gefur gull í mund’
Íslenski fáninn, bandaríski bjáninn
26 January 2005 | molar | 2 Comments
Ég hef lengi verið á leiðinni að heilsa upp á félaga mína á kránni Dunmore Cave, sem var mitt annað heimili í Berlín hér á árum áður. Fyrst við vorum í partíi í grenndinni lét ég loksins verða af því um helgina. Um leið og ég rak nefið inn þekkti vertinn Peter mig strax og [...]
Read ‘Íslenski fáninn, bandaríski bjáninn’
Danska lagið
25 January 2005 | molar | 2 Comments
Það vakti furðu í partíi fyrr í vetur þegar danskur skólabróðir okkar gerði allt hvað hann gat til að koma Phil Collins í græjurnar, þvert á það sem við héldum vera smekk fólks. Þessa skrítnu hegðun væri örugglega hægt að skrifa á slæman smekk hans. Um síðustu helgi, þegar við sáum hóp dana við sömu [...]
Bóndadagurinn
24 January 2005 | molar | 3 Comments
Loksins náði ég að draga Rúnu inná rammþýskan veitingastað. Ég notaði trompið sem bóndadagurinn er (sem sum okkar gleymdu reyndar þangað til ég minnti á hann) og fékk að ráða matseðli kvöldsins. Fyrir valinu varð hornveitingastaður sem við löbbum alltaf framhjá á leiðinni í skólann, Thüringer Stuben. Svo er skemmst frá að segja að maturinn [...]
Rúna rokk
23 January 2005 | molar | 2 Comments
Mér finnst i-pod alveg dásamleg uppfinning. Hann getur nefnilega látið mér líða eins og ég sé poppstjarna í myndbandi þegar ég labba í skólann eða út í búð. Stundum er ég Björk að labba um stræti New York borgar. Stundum er ég aðeins melankólískari sem Beth Gibbons. En ég tek mig alltaf rosa vel út [...]
Montfærsla
21 January 2005 | molar | 3 Comments
Þessi vika hefur verið svo árangursrík að ég má til með að monta mig. Í fyrsta lagi fór ég í viðtal til eins kennara, sem mig grunar að sé farin að ganga undir nafninu Nornin meðal nokkurra samnemenda okkar. Hún getur nefnilega verið ansi óvægin við nemendurna og tók einmitt eitt slíkt kast hálftíma áður [...]
Jónas og ég
21 January 2005 | molar | 1 Comment
Um þessar mundir erum við Andrés að vinna fyrirlestur um sýningu Hitlers á úrkynjaðri list. Andrés ætlar að kynna samnemendum okkar sýningu Jónasar frá Hriflu á svokölluðum klessumálverkum í sama fyrirlestri. Í dag var strákurinn í heimildaleit á netinu, og fann þar efnisgrein um Jónas, sem honum leist ágætlega á. Þegar hann sýndi mér svo [...]
Hæll
19 January 2005 | molar | 4 Comments
Í morgunsárið leit húsvörðurinn við hjá okkur til að laga sprungna gólffjöl. Það væri svosem ekki í frásögur færandi nema fyrir það, að maðurinn heitir Akkiles! Hvort það er fornafn eða eftirnafn er ekki enn komið í ljós.
Snúður í bíó
18 January 2005 | molar | No Comments
Um helgina fórum við á ansi skemmtilega kvikmyndasýningu. Myndin var frá 3. áratugnum, þögul, og fjallaði um einn sólarhring í stórborginni Berlín, sem aldrei sefur. Til að kóróna skemmtilegt myndefni sat maður við orgel bíósins og framkallaði einhver furðulegustu hljóð sem ég hef nokkurn tíma heyrt frá slíku hljóðfæri. Það merkilegasta við kvöldið var samt [...]
Stéttskipting á málþingi
16 January 2005 | molar | 1 Comment
Sætaskiptan á málþinginu sem ég sat var með öðru móti en maður á að venjast að heiman. Miðpunkturinn er hringur af borðum, þar sem nærri þrjátíu manns geta setið. Þar eru allir þeir sem boðið hefur verið til þingsins, hvort sem er til að flytja fyrirlestra eða stýra umræðum. Til að fá sæti við borð [...]
Read ‘Stéttskipting á málþingi’
Ráðstefnan
14 January 2005 | molar | No Comments
Í dag mun ég setja persónulegt met í skólasetu, en þá verð ég á vakt frá 9.30 til 17.00. Ástæðan er ekki kvalalosti kennaranna heldur sú, að þetta er annar (og lengsti) dagur þrídægra ráðstefnu, „Ethik und Ästhetik des Mitleids“. Til þessa hefur tvennt staðið uppúr: 1. Skipuleggjendurnir hefðu ekki getað hitt á betri tímasetningu. [...]
Trallalí, trallala
13 January 2005 | molar | 7 Comments
Hann er víst misjafn, smekkur mannanna, en þó er gjarnan samdóma álit manna að tónlistarsmekkur Þjóðverja sé í slakara lagi. Vilji einhver komast að hinu sanna um málið, er hinum sama vinsamlegast bent á tónleika með Dieter Thomas Kuhn sem haldnir verða í Berlín þann tuttugasta ágúst næstkomandi. Af myndunum að dæma ætti að vera [...]
Ordnung!
12 January 2005 | molar | 2 Comments
Loksins, loksins gerðist það! Eftir að hafa búið í Þýskalandi í 204 daga fengum við loksins að heyra það þýskasta sem hugsast getur. Við stóðum í biðröð í kaffiteríunni á eftir konu. Alltíeinu bregður hún sér úr röðinni og sést hvergi. Eðlilega (héldum við) færðum við okkur framar til að liðka fyrir. En, nei! Örskömmu [...]
Gleðilegt heilbrigði!
10 January 2005 | molar | 2 Comments
Á íslensku þekki ég tvær leiðir til að koma hamingjuóskum í tilefni áramóta á framfæri. Annað hvort segir maður „gleðilegt nýtt ár“ eða „farsælt komandi ár“. Þeir Þjóðverjar sem ég hef heyrt koma álíka kveðjum í orð virðast hafa úr aðeins fleiri lýsingarorðum að velja, en þau orð sem oftast heyrast á undan „neues Jahr“ [...]
Kennslustund
9 January 2005 | molar | 2 Comments
Íslendingar hafa margir hverjir mikinn áhuga á því hvaða álit útlendingar hafa á landinu okkar. Viðbrögð fólks sem við höfum hitt hér úti eru yfirleitt rosalega jákvæð og fólk tekur jafnvel andköf þegar það heyrir að við komum frá kalda landinu hennar Bjarkar. En ekki virðast allir líta skerið svona björtum augum. Í vikunni ræddi [...]
Áramótaheit
7 January 2005 | molar | 1 Comment
Nýju ári fylgja alltaf einhverjar nýjar tilfinningar. Þótt heimurinn breytist kannski ekkert í raun og veru, svífur andi breytinga yfir vötnum. Ég hef fundið sérstaklega mikið fyrir þessu hér í Berlín síðustu daga, en ekki getað fest almennilega hvað veldur. Loksins áttaði ég mig: Göturnar eru fullar af skokkurum að halda áramótaheitið sitt. Þar sem [...]
Sú bleika
6 January 2005 | molar | 1 Comment
Ég er aldeilis ekki hrifin af því að fólk haldi því fram að ljóskur séu vitlausari en annað fólk. Ljóshærð skólasystir okkar frá Danmörku hjálpar ekki við að vinna gegn þessari alhæfingu. Stúlkan er alla daga klædd í bleik föt, með bleikan trefil, bleika tösku, bleikan blýant með glimmeri og svo áfram mætti telja. Þetta [...]
Nú árið er liðið
4 January 2005 | molar | No Comments
Áramótin fóru mjög vel fram hjá okkur Andrési. Við buðum nokkrum í mat, nautafilé með parmaskinku og sveppum, og skáluðum í bollurestum frá því í afmælinu mínu (eða þau okkar sem höfðu lyst á). Í staðinn fyrir fréttaannál og áramótaskaup eyddum við svo kvöldinu í fagnað, sem náði hámarki á Unter den Linden. Þar voru [...]
Nýársnótt 2005
3 January 2005 | molar | 7 Comments
Þegar þrjú kortér voru liðin af nýju ári og við búin að skoða flugeldana við Brandenborgarhliðið áttum við leið fram hjá fræga passamyndasjálfsalanum. Úr varð að við skelltum okkur saman í kassann með þessari líka ljómandi fínu útkomu. Myndunum fylgja óskir um gott nýár til ykkar.