Ordnung!

12 January 2005 | Andrés

Loksins, loksins gerðist það! Eftir að hafa búið í Þýskalandi í 204 daga fengum við loksins að heyra það þýskasta sem hugsast getur. Við stóðum í biðröð í kaffiteríunni á eftir konu. Alltíeinu bregður hún sér úr röðinni og sést hvergi. Eðlilega (héldum við) færðum við okkur framar til að liðka fyrir. En, nei! Örskömmu síðar kemur konan, ill á svip, bendir okkur góðfúslega á að hún hafi staðið þarna á undan okkur. Klykkir svo út með orðunum ódauðlegu: „Ordnung muss sein!“

2 Comments

  1. Pibbý said on 12 Jan 2005 at 14:16:

    Góð kjeellíngin ;-)

  2. arika said on 14 Jan 2005 at 09:37:

    Já….þetta gerir lífið þess virði í höfuðborgum

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.