Trallalí, trallala
13 January 2005 | Andrés

Hann er víst misjafn, smekkur mannanna, en þó er gjarnan samdóma álit manna að tónlistarsmekkur Þjóðverja sé í slakara lagi. Vilji einhver komast að hinu sanna um málið, er hinum sama vinsamlegast bent á tónleika með Dieter Thomas Kuhn sem haldnir verða í Berlín þann tuttugasta ágúst næstkomandi. Af myndunum að dæma ætti að vera feiknafjör.
7 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Ég er búinn að panta mér ferð út og miða á tónleikana. Dieter hefur lengi verið í hópi minna eftirlætis hljómlistarmanna og það er útilokað að ég láti þetta tækifæri mér úr greipum ganga. Jíbbí :D
“Über den wolken…” Drézi minn, þú ert greinilega ekki búinn að vera nógu lengi í dojtz….Dieter Thomas Kuhn er jú klassiker ;-) hahahha En lúkkið á honum er samt best…
þar sem við erum komin út í þessa sálma…verð ég nú að deila með ykkur mínum uppáhalds-slögurum…annars vegar “ich will keine Schockolade, ich will lieber einen Mann!” svo ekki sé talað um “Er hat ein knallrotes Gummiboot”….þessa “frábæru” slagara er t.d. að finna á mínum margfræga Schlager Bild cd…sem Tommi Bjözz hefur miklar mætur á og finnst enn jafn skrýtið að honum hafi verið stolið í innbrotinu hjá mér um árið ;-) á Íslandi… Þvílík hneisa…get brennt hann ef óskað er ;-)
Held að hinn skrækróma Geir Ólafs, ofurtöffari og kvennaljómi, (og að eigin sögn tilvonandi júrovision stjarna íslands) ætti að reyna fyrir sér á þýskum markaði.
Ég á mynd af mér, tekna í undirgöngum í Tuebingen, þar sem ég stilli mér spes upp fyrir framan plakat af þessum sveini, hvort hann var í e-h nornabúningi með langt nef.. Allavega var þetta einhver allhrottaleg mýla…
Nú veit maður hvar Gísli Sigurgeirsson fréttamaður sjónvarpsins á Akureyri lærði að halda á hljóðnema!
hef einmitt tekið svona mynd af eins veggspjaldi. langar mikið að sjá kauða “live”.