Ráðstefnan
14 January 2005 | Andrés
Í dag mun ég setja persónulegt met í skólasetu, en þá verð ég á vakt frá 9.30 til 17.00. Ástæðan er ekki kvalalosti kennaranna heldur sú, að þetta er annar (og lengsti) dagur þrídægra ráðstefnu, „Ethik und Ästhetik des Mitleids“. Til þessa hefur tvennt staðið uppúr:
1. Skipuleggjendurnir hefðu ekki getað hitt á betri tímasetningu. „Mitleid“ er þýska orðið yfir samúð og nú hafa flestir fyrirlestrarnir verið með grunnþemað: „Á hverju byggjum við samúðina sem knýr okkur til að hjálpa fólki í Asíu?“
2. Allir þátttakendur þurftu að skrá sig með tveggja vikna fyrirvara. Þegar svo er geri ég smákröfu til ráðstefnuhaldara — að fá fín, prentuð nafnspjöld í barminn. En, nei! Við þurfum að skrifa nafnið okkar sjálf!
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.