Stéttskipting á málþingi
16 January 2005 | Andrés
Sætaskiptan á málþinginu sem ég sat var með öðru móti en maður á að venjast að heiman. Miðpunkturinn er hringur af borðum, þar sem nærri þrjátíu manns geta setið. Þar eru allir þeir sem boðið hefur verið til þingsins, hvort sem er til að flytja fyrirlestra eða stýra umræðum. Til að fá sæti við borð sýnist mér maður þurfa að hafa „Prof. Dr.“ fyrir framan nafnið sitt.
Í kringum borðahringinn eru síðan tveir stólahringir fyrir almúgann. Heildaráhrifin eru þau, að mér finnst ég vera í hugvísindadýragarði. Við sitjum í kringum sprenglært fólk sem ræðir allskonar flókin fyrirbæri. Enn sem komið er hefur engin „stólamanneskja“ tekið þátt í umræðum, þannig að aðskilnaðurinn er alger.
Ætli við þurfum ekki líka að passa okkur að gefa prófessorunum ekki að éta?
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
skora á þig að koma með vel valin komment, þetta proffalið má ekki halda að það sé alviturt og eitt um að geta komið með afstæð svör!!