Jónas og ég
21 January 2005 | Rúna
Um þessar mundir erum við Andrés að vinna fyrirlestur um sýningu Hitlers á úrkynjaðri list. Andrés ætlar að kynna samnemendum okkar sýningu Jónasar frá Hriflu á svokölluðum klessumálverkum í sama fyrirlestri.
Í dag var strákurinn í heimildaleit á netinu, og fann þar efnisgrein um Jónas, sem honum leist ágætlega á. Þegar hann sýndi mér svo bútinn sagði ég furðu lostin: „En ég skrifaði þetta!“
Svona er nú netið lítið.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
ooh, rúna, þú ert svo fræg :) Og gáfuð :)