Montfærsla

21 January 2005 | Rúna

Þessi vika hefur verið svo árangursrík að ég má til með að monta mig.

Í fyrsta lagi fór ég í viðtal til eins kennara, sem mig grunar að sé farin að ganga undir nafninu Nornin meðal nokkurra samnemenda okkar. Hún getur nefnilega verið ansi óvægin við nemendurna og tók einmitt eitt slíkt kast hálftíma áður en ég átti að mæta til hennar. Ég bjóst því ekki við að hún tæki mér mjúkum höndum. En það var nú öðru nær. Meðal annars ræddum við um próf sem ég tók hjá henni í desember. Í því samhengi sagði hún að ég væri greinilega ekki aðeins hæfileikaríkur nemandi heldur einnig mjög dugleg. Svo leit hún mæðulega á prófabunkann og sagði að líf hennar væri mun auðveldara ef allir væru eins og ég.

Í öðru lagi hélt ég fyrirlestur í gær. Ég talaði um Potsdamer Platz, en innihaldið skipti ekki mestu máli heldur hvernig maður bæri sig að við fyrirlesturinn. Þar fékk ég svo til enga gagnrýni, heldur sagði sá kennari að þetta hefði verið „ideal“ fyrirlestur.

Húrra, húrra, ég er voða glöð.

3 Comments

  1. Hrönn said on 21 Jan 2005 at 21:01:

    Til lukku Rúna mín, þú ert bara að slá í gegn í þýskalandinu! Alltaf svo dugleg… annað en sumir hér á þessu frostbitna landi, get ekki einu sinni vaknað á morgnana með góðu móti, þessar 3 vekjaraklukkur eru ekki að gera sitt gagn.. Har det bra, góða helgi , þín Hrönn

  2. sun said on 23 Jan 2005 at 18:08:

    Það er gott og hollt að monta sig.
    Til hamingu með frábæra frammistöðu í Þýskalandi:)
    saknaðarkveðjur………….

  3. Ragnhildur litla frænka said on 24 Jan 2005 at 11:18:

    Til hamingju Rúna mín! Á ekki þessi dugnaður að vera ættgengur? Ég hef eitthvað verið svikin um þetta! :)

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.