Rúna rokk

23 January 2005 | Rúna

Mér finnst i-pod alveg dásamleg uppfinning. Hann getur nefnilega látið mér líða eins og ég sé poppstjarna í myndbandi þegar ég labba í skólann eða út í búð.

Stundum er ég Björk að labba um stræti New York borgar. Stundum er ég aðeins melankólískari sem Beth Gibbons. En ég tek mig alltaf rosa vel út með tónlistina í eyrunum.

Ég efast um að ég verði einhvern tíma Chris Martin í myndbandinu við „The Scientist“. Hann labbar nefnilega aftur á bak.

2 Comments

  1. sun said on 23 Jan 2005 at 18:09:

    Það er stórhættulegt að labba afturábak, en á sama tíma mjög spennandi…

  2. Ragnhildur litla frænka said on 24 Jan 2005 at 11:19:

    ooh, mig langar í ipod! ég þarf alltaf að syngja þegar ég vil láta mér líða eins og í myndbandi….örugglega þess vegna sem allir halda að ég sé geðveik

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.