Bóndadagurinn

24 January 2005 | Andrés

Loksins náði ég að draga Rúnu inná rammþýskan veitingastað. Ég notaði trompið sem bóndadagurinn er (sem sum okkar gleymdu reyndar þangað til ég minnti á hann) og fékk að ráða matseðli kvöldsins. Fyrir valinu varð hornveitingastaður sem við löbbum alltaf framhjá á leiðinni í skólann, Thüringer Stuben. Svo er skemmst frá að segja að maturinn var alveg hrikalega fínn — svo fínn að ég get örugglega dobblað Rúnu á álíka stað án þess að nota tyllidaga í framtíðinni.

3 Comments

  1. Maggahuga said on 24 Jan 2005 at 14:18:

    Fór einmitt á rammþýskan stað í minni síðustu viku í Berlín. Fyrir valinu var heimilislegur staður baka til á Alex og fyrir valinu varð Eisbein og hálf önd, eðal matur framreittur af þýskustu babúskum sem ég hef séð. Loks fékk maður á tilfinninguna að kjöt sem etið er sé virkilega af dýri sem eitt sinn lifði og lék sér.. en það semsagt voru hár, skinn og greinilega mikið notuð liðamót í þessum ofsoðna svínafæti sem ég tróð í kjaft ásamt súrkáli, rauðkáli, Kartoffeln und Senf – Öss hve góður matur þetta var,, en vara ykkur samt við.. Rop eftir svona mat smakkast ekki vel.

  2. Ragnhildur litla frænka said on 25 Jan 2005 at 12:22:

    ooooojjjjjjj!!!!! Ég kýs heldur kjötið mitt vel reytt, skorið og pakkað, eins fjarri sínu upprunalegu formi og hægt er!

  3. Armchair said on 29 Jun 2009 at 21:28:

    jiLzpQ Armchair sightseeing, with links to many famous places and landmarks

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.