Danska lagið

25 January 2005 | Andrés

Það vakti furðu í partíi fyrr í vetur þegar danskur skólabróðir okkar gerði allt hvað hann gat til að koma Phil Collins í græjurnar, þvert á það sem við héldum vera smekk fólks. Þessa skrítnu hegðun væri örugglega hægt að skrifa á slæman smekk hans. Um síðustu helgi, þegar við sáum hóp dana við sömu aðstæður, kom annað í ljós. Þjóðin virðist deila þessum sama slæma smekki. Aðspurð vissu þau uppá sig sökina þegar þau sungu með Phil Collins og Pet Shop Boys (öllum lögunum, ekki bara Go West). Sögðu að þetta hefði bara verið svo rosalega vinsælt uppúr 1990 — þau réðu ekkert við sig.

Mér finnst þó skömminni skárra að hafa hlustað á Ace of Base og Haddaway á sama tíma.

2 Comments

  1. Ragnhildur litla frænka said on 26 Jan 2005 at 10:39:

    “All that she wants is another baby” Ace of base klikkar ekki!

  2. Svenni said on 26 Jan 2005 at 11:13:

    Það gerist ekki verra en Phil Collins. Í einum þátta South Park var krökkunum gefið ritalin vegna óþekktarinnar. Þegar síðan upp komst að þau voru farin að hlusta á Phil Collins var þeim gefið ritalout með það sama.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.