Archives for February 2005
I had the time of my life
28 February 2005 | molar | 341 Comments
Þegar austur-þýskum stjórnvöldum varð ljóst að landsmenn voru ekki alveg sáttir við ástandið í landinu tóku þau til sinna ráða. Þau juku ekki frelsi þegnanna, afléttu ekki skömmtunakerfinu — nei, þegar létta átti lund Austur-Þjóðverja hóf ríkissjónvarpið að sýna Dirty Dancing á föstudögum. Þetta var sagt í heimildamynd um fall múrsins sem ég keypti um [...]
Read ‘I had the time of my life’
Vegavinnuverkamanna…
28 February 2005 | molar | 671 Comments
Þegar við fengum okkur þýska farsíma þurfum við að lesa langan samning og skrifa undir ýmis skjöl — samtals tuttugu sinnum. Þess vegna skyldi engan undra að svipað hafi verið uppá teningnum þegar við sóttum um heimasíma og internet. Það sem vakti mesta athygli var samt orð framarlega í notendaskilmálum fyrirtækisins — orð sem er [...]
Kúluvarp
27 February 2005 | molar | 2 Comments
Það er alþekkt að austur-þýsk stjórnvöld stunduðu það grimmt að gefa íþróttamönnum sínum stera til að vinna sem flest mót. Íþróttakonurnar urðu þannig stærri, stæðilegri og karlmannlegri en gengur og gerist með kvenmenn — mýtan um austur-þýska kúluvarparann varð til. Í gær sá ég viðtal við eina af þessum goðsagnarpersónum. Heidi Krieger var einn öflugasti [...]
Mama mia
26 February 2005 | molar | 1 Comment
Þá skortir ekki tónleikana í Berlín, og oft er meira í boði en við getum leyft okkur. Andrés gaf mér tvo miða í jólagjöf á Lou Reed tónleika í apríl og ég hlakka mikið til. Að sjálfsögðu valdi ég Andrés sem fylginaut. Það virðist samt vera vinsælla hér í borg að sjá eftirhermur leika fræga [...]
Shania og Placido
24 February 2005 | molar | 2 Comments
Í nýjasta tölublaði Séð og Heyrt er langt viðtal við athafnafólkið Þorstein Kragh (43) og Þóru Guðmundsdóttur (53), en um þessar mundir eru þau að skipuleggja tónleika með Placido Domingo í Egilshöllinni. Þóra segir: … sem aðdáandi tenóranna þriggja fannst mér það mjóg spennandi. Ég var nýkomin af tónleikum með Shania Twain og fannst hugmyndin [...]
Vorlesungsferien
23 February 2005 | molar | 1 Comment
Nú eru allir tímar og fyrirlestrar þessarar annar að baki. Andrés tók þrjú próf 18. – 21. febrúar og ég tvö. Við höldum að við höfum ekkert orðið okkur til skammar, en það fáum við fyrst að vita í mars. Næsta önn byrjar um miðjan apríl, og þangað til munum við skrifa þrjár ritgerðir á [...]
Jólin, jólin
18 February 2005 | molar | 2 Comments
Þýska skólaárið liggur mjög skakkt á almanaksárinu miðað við það íslenska. Þannig er fyrra misseri ársins að ljúka þessa dagana — kennslu sem hófst í október lýkur í dag. Þetta ástand setur hins vegar innri klukku líkama míns úr lagi. Ég hef nefnilega alist upp við skólaár þar sem kennslulokum og prófum að vetri fylgja [...]
Snakksmygl
16 February 2005 | molar | 2 Comments
Ég þekki fólk, aðallega konur, sem getur algjörlega misst sig í súkkulaðineyslu. Mér þykir súkkulaði allt í lagi en veikleiki minn er annar. Ég elska snakk. Einhverra hluta vegna barst í tal í skólanum um daginn hvað mér þykir blátt Pringles með salt- og edikbragði svakalega gott. Því miður er ekki hægt að kaupa þennan [...]
Heimsókn í Konzentrationslager
14 February 2005 | molar | 4 Comments
Laugardaginn síðastliðinn, einn mesta rigningardag vetursins, fór ég ásamt nokkrum samnemendum mínum í skoðunarferð um útrýmingarbúðirnar Sachsenhausen, rétt utan við Berlín. Við vorum nógu mörg til að fá úthlutað okkar eigin leiðsögumanni, sem hjálpaði okkur að komast í fíling þegar við óðum leðju í búðunum. Hápunktur ferðarinnar var hins vegar ekki svefnskálarnir, útlistun á læknatilraunum [...]
Read ‘Heimsókn í Konzentrationslager’
Föstudagsfýla
12 February 2005 | molar | 2 Comments
Fyrirlestrarnir á föstudögum eru alltaf frekar súrir. Síðasti fyrirlestur var í súrasta lagi, því undir leiðindunum sátum við Andrés í einhverjum fnyk, sem við kunnum engar skýringar á. Fyrsta hálftímanum eyddi ég í að þefa af ólíkum hlutum peysunnar minnar, en hvergi fann ég nokkuð nema ljúfa ilmvatnslykt. Ég var farin að líta í kringum [...]
Ævintýri á bókasafni
10 February 2005 | molar | No Comments
Eða hvernig þýskur raunveruleiki minnir stundum á farsakennt sjónvarpsleikrit í fimm þáttum. Persónur: Drengur og bókasafnsvörður. Leikmynd: Bókasafn mannfræðideildar þýsks háskóla, staðsett í nokkrum herbergjum á jarðhæð gamals herragarðs. Ryk hangir í lofti, þannig að safnið virðist hálfrökkvað. Afgreiðsluborðið, næstu hillur við það og nærliggjandi veggur eru þakin klukkum af öllum stærðum og gerðum. Aðra [...]
Stríðnispúkinn
9 February 2005 | molar | 6 Comments
Það er óþekkur sláni í bekknum okkar. Hann er greinilega búinn að ákveða að leggja einn bekkjarbróður sinn í einelti. Sá er rauðhærður og með gleraugu. Sláninn reynir hvað hann getur að æsa þann rauðhærða upp. Í gær horfði hann t.d. stöðugt á bókina hans, þannig að fórnarlambið var næstum farið að gráta í lokin. [...]
Konan með stimpilinn
8 February 2005 | molar | 1 Comment
Í gær átti ég að fá námsárangursvottorð í einum kúrsinum mínum — eitthvað sem ég get síðan sent LÍN til að fá pening fyrir. Í upphafi tímans tilkynnti kennarinn að því miður fengjum við bleðlana okkar ekki fyrr en í næstu viku. Konan með stimpilinn var nefninlega veik.
Bolla, bolla, bolla
7 February 2005 | molar | 3 Comments
Þó maður búi í útlöndum eru víst vissar hefðir sem maður reynir að halda í. Ein þeirra er til dæmis að gera misheppnaða tilraun til að baka vatnsdeigsbollur um þetta leyti árs. Undanfarin ár hef ég þrælað mér í gegnum baksturinn — árangurinn hefur undantekningalaust verið beyglaðar, misstórar, fallnar og hálfhráar bolluómyndir. Þetta árið misheppnaðist [...]
Sushivandi
6 February 2005 | molar | 2 Comments
Þegar vel stendur á hjá okkur gerum við okkur glaðan dag og förum út að borða. Síðast varð fyrir valinu nýopnaður sushistaður sem er, vegna þess að hann er í hverfinu okkar, strax orðinn hipp, kúl og rosavinsæll. Enda kannski ekki að furða — allt starfsfólkið er „ekta“ japanir og maturinn eftir því ljómandi góður. [...]
Hollendingurinn og Hjalti
2 February 2005 | molar | 1 Comment
Í gærkvöldi gerðumst við menningarleg og fórum með Doktor Frank og nokkrum samnemendum í leikhús. Leikritið var ekkert spes en kráarferðin á eftir var þeim mun betri. Samnemendur okkar virðast hafa mun minna þol en við þegar kemur að áfengi, og eftir örfáa drykki fóru þeir að tala um sín dýpstu leyndarmál. Maður fer nú [...]
Read ‘Hollendingurinn og Hjalti’
Brúsi frændi
2 February 2005 | molar | No Comments
Einsog flestum ætti að vera kunnugt er allt efni þýskra sjónvarpsstöðva og kvikmyndahúsa talsett á móðurmál heimamanna. Menn láta sér samt ekki nægja að þýða sjálft efnið, heldur er titlum kvikmynda gjarnan snarað yfir í leiðinni. Fyrir vikið er oft erfitt að átta sig á því hvaða myndir eru á bíódagskránni, einsog var erfitt að [...]
Achtung!
1 February 2005 | molar | 2 Comments
Í morgun áttum við leið í þvottahúsið með drjúgan skammt, sem við skiptum bróðurlega í tvo risastóra IKEA-burðarpoka. Efst í annan pokann laumaði ég myndavél, enda ætlaði Rúna að taka nokkrar myndir af hverfinu fyrir skólann. Allt gekk sinn vanagang, þrjár vélar fylltust af skítugum fötum og sængurverum, og við héldum út í fallegan morguninn [...]