Stríðnispúkinn
9 February 2005 | Rúna
Það er óþekkur sláni í bekknum okkar. Hann er greinilega búinn að ákveða að leggja einn bekkjarbróður sinn í einelti. Sá er rauðhærður og með gleraugu. Sláninn reynir hvað hann getur að æsa þann rauðhærða upp. Í gær horfði hann t.d. stöðugt á bókina hans, þannig að fórnarlambið var næstum farið að gráta í lokin.
Ég vil taka það fram að ég er ekki að tala um 7 ára bekkinn sem ég kenndi í fyrra. Ég er að tala um fullorðið fólk á háskólabekk í Berlín, Þýskalandi.
6 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Ég kannast við þetta. Er rauðhærður og með gleraugu. Var oft strítt út af þessu. bæði þegar ég var yngri og líka í háskóla.
Hvað er hins vegar málið með að horfa á bókina hjá kauða, er það eitthvað til að kippa sér upp við? Má ekki horfa á bækur?
I love those Gingerboys. Josh Homme er sætastur.
ég hef aldrei skilið þetta dæmi með rauðhærða, af hverju eru rauðhærðir alltaf lagðir í einelti? Mér finnst flott að vera rauðhærður!! Og, já, hvað er málið með að horfa á bókina? Var sláninn að reyna að brenna gat á hana með augunum eða hvað?
hvad er málid med germana og bókabrennur???
Já þetta kannast ég við. Gulrótahaus og gleraugnaglámur voru mín viðurnefni gegnum skólagönguna. Hætti reyndar þegar ég komst í háskóla því þá var orðið töff að vera rauðhærður.
Það á að leggja rauðhært fólk í einelti, það ætti að sæma þennan góða mann bláa max fyrir gott starf í þágu almennings.