Föstudagsfýla

12 February 2005 | Rúna

Fyrirlestrarnir á föstudögum eru alltaf frekar súrir. Síðasti fyrirlestur var í súrasta lagi, því undir leiðindunum sátum við Andrés í einhverjum fnyk, sem við kunnum engar skýringar á.

Fyrsta hálftímanum eyddi ég í að þefa af ólíkum hlutum peysunnar minnar, en hvergi fann ég nokkuð nema ljúfa ilmvatnslykt. Ég var farin að líta í kringum mig og gá hvort að einhver róninn hefði slæðst inn í fyrirlestrarsalinn. Þessi fnykur angraði mig þvílíkt.

Svo hnippti Andrés í mig og benti niður. Var þá ekki bara stærðarinnar hundaskítur klesstur við skósólann hans!

2 Comments

  1. sun said on 14 Feb 2005 at 13:39:

    oj!

  2. Ragnhildur litla frænka said on 15 Feb 2005 at 16:15:

    hann andrés, hann er svo mikil subba!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.