Heimsókn í Konzentrationslager

14 February 2005 | Andrés

Laugardaginn síðastliðinn, einn mesta rigningardag vetursins, fór ég ásamt nokkrum samnemendum mínum í skoðunarferð um útrýmingarbúðirnar Sachsenhausen, rétt utan við Berlín. Við vorum nógu mörg til að fá úthlutað okkar eigin leiðsögumanni, sem hjálpaði okkur að komast í fíling þegar við óðum leðju í búðunum.

Hápunktur ferðarinnar var hins vegar ekki svefnskálarnir, útlistun á læknatilraunum nasista eða myndir af gyðingum með sorgarsvip. Hápunktinum var nefnilega náð strax í upphafi — í móttökusal sýningarskálans. Þar sem við vorum að búa okkur undir stuttan fyrirlestur stökk allsnakinn maður inn úr rigningunni, rennblautur einsog gefur að skilja, og hrópar yfir salinn: „Ég slapp úr hinum útrýmingarbúðunum og er kominn hingað — þangað sem ég á heima.“ Svo settist hann á gólfið og neitaði að fara.

Fyrst héldum við að þetta væri einhver listrænn gjörningur — jafnvel að hann ætti að þjóna einhverskonar „safnapedagógískum“ tilgangi. Svo, þegar kom til ryskinga milli safnstjórans og nakta mannsins, lá ljóst fyrir að ekki væri allt með felldu. Innan skamms var yfirvaldið mætt á svæðið — löggan hjálpaði mönnunum í hvítu sloppunum að koma karlinum einhvert þar sem færi betur um hann.

4 Comments

  1. Heiða said on 14 Feb 2005 at 15:30:

    Sendu þetta í DV, og fáðu fréttaskotpeninga fyrir, held það sé 7000-kall. Fyrst þú átt mynd og allt, þá er þetta ekta svona efni sem DV sækist eftir að birta.

  2. maggamega said on 14 Feb 2005 at 17:15:

    Uss þetta hefur verið svakalegt, mér var nóg að sjá skiltin þar sem á stóð að grasgöngumenn ættu á hættu að vera skotnir, síðan henti fólk sér víst í stórum stíl á grasið til þess að láta skjóta sig, einnig fannst mér göngubrautin, .s.s. prufubraut fyrir skó hermanna úr hinum ýmsu jarðefnum ansi merkileg en nakinn maður, þetta toppar allt.

  3. Ragnhildur litla frænka said on 15 Feb 2005 at 16:17:

    guð, ég verð endilega að fara í þetta safn, stórmerkilegt alveg!

  4. Eirik said on 18 Feb 2005 at 10:26:

    Ég ætla að tékka á hinum útrýmingarbúðunum – þessum sem maðurinn kom úr. Eða eru þær kannski ekki til. Hvar hefur maður heyrt þann söng áður?

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.