Snakksmygl

16 February 2005 | Rúna

Ég þekki fólk, aðallega konur, sem getur algjörlega misst sig í súkkulaðineyslu. Mér þykir súkkulaði allt í lagi en veikleiki minn er annar. Ég elska snakk.

Einhverra hluta vegna barst í tal í skólanum um daginn hvað mér þykir blátt Pringles með salt- og edikbragði svakalega gott. Því miður er ekki hægt að kaupa þennan munað í Berlín, og ekki heldur á Íslandi að ég held.

Í morgun kom hollensk kunningjakona okkar með bros á vör til okkar fyrir tíma og dró upp tvo stauka af bláu Pringles. Þá hafði hún beðið vinkonu sína, sem var að koma í heimsókn til Berlínar, að kippa þessu með handa snakkætunni mér.

Sem betur fer deilir Andrés ekki þessari aðdáun á bláu Pringles með mér; honum finnst það satt að segja viðbjóðslegt. Ég mun því eiga fleiri hundruð grömm af uppáhaldssnakkinu mínu — alveg fyrir mig. Þökk sé tveimur Hollendingum sem ég þekki lítið sem ekkert.

2 Comments

  1. sun said on 17 Feb 2005 at 13:26:

    samgledst thér innilega, svona hlutir/atvik gera lífid svo skemmtilegt:)

  2. Ragnhildur litla frænka said on 18 Feb 2005 at 15:34:

    Oooh, vertu fegin að ég er ekki þarna! Ég myndi svoleiðis éta þetta allt upp til agna á 5 mínútum! En þegar ég fer til london og kem svo í heimsókn til þín til Berlínar þá skal ég líka smygla svona til þín! :)

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.