Vorlesungsferien
23 February 2005 | Rúna
Nú eru allir tímar og fyrirlestrar þessarar annar að baki. Andrés tók þrjú próf 18. – 21. febrúar og ég tvö. Við höldum að við höfum ekkert orðið okkur til skammar, en það fáum við fyrst að vita í mars.
Næsta önn byrjar um miðjan apríl, og þangað til munum við skrifa þrjár ritgerðir á mann. Það ætti að verða fínt. Ritgerðarefnin eru ekki af verri endanum, t.d. Sjónvarpsturninn í Berlín, S-Bahn-kerfið í Berlín, Tungumál Þriðja ríkisins og Adolf Christus, trúarstef í hugmyndafræði nasismans.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
ótrúlega skemmtileg og spennandi ritgerdarefni. get ég pantad einka-fyrirlestur vid tækifæri?