Mama mia
26 February 2005 | Rúna
Þá skortir ekki tónleikana í Berlín, og oft er meira í boði en við getum leyft okkur. Andrés gaf mér tvo miða í jólagjöf á Lou Reed tónleika í apríl og ég hlakka mikið til. Að sjálfsögðu valdi ég Andrés sem fylginaut.
Það virðist samt vera vinsælla hér í borg að sjá eftirhermur leika fræga söngvara og hljómsveitir. Þannig er sjálfur Falco búinn að vera með stöðugt uppistand í marga mánuði, og hægt er að sjá Queen syngja gömlu smellina. Um alla borg eru gömlu stjörnurnar auglýstar, og í öðru hverju tilfelli er það hljómsveitin Abba sem er boðið upp á. Svo virðist sem Abba-æðið í Þýskalandi sé það langlífasta í heiminum, yfir 30 ára gamalt!
Núna er uppáhaldsútvarpsstöðin mín, Radio 1, farin að auglýsa nýjustu Abba-sýninguna, sem fer nú samt ekki fram fyrr en í desember. Slagorð þessarar auglýsingaherferðar er: „Nógu góð ástæða til að safna síðu hári.“ Ég held ekki…
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
mmm, svona verður þetta líka hjá mér útí london, endalausir tónleikar :)