Archives for March 2005

Fatlafólið

30 March 2005 | molar | 11 Comments

Vegna fjölda áskorana smeygi ég hér með mynd af slysadrottningunni, tveimur dögum eftir að hún flaug svo eftirminnilega á hausinn.

Read ‘Fatlafólið’

Hallelúja!

29 March 2005 | molar | No Comments

Í Berlín eru starfrækt ríflega 700 trúfélög, sem öllum eru gerð góð skil í handbók sem kom út á síðasta ári. Þessi handbók er grunnurinn að trúarskoðunarferðum sem ég ætla að gera að hobbýi hjá mér næstu mánuði.
Á sunnudaginn var, stærstu hátíð kristinna manna, fór ég ásamt skiptinemanum Eirík í jómfrúferð hobbýsins. Fyrir valinu varð […]

Read ‘Hallelúja!’

Horfðu á björtu hliðarnar…

28 March 2005 | molar | 1 Comment

Eftir að hafa nuddað andlitinu á mér upp úr gangstétt fannst mér ekkert smá erfitt að láta sjá mig úti á götu næstu daga. Mér fannst allir vera að glápa á mig, sem þeir reyndar voru, og leið hreint ekkert vel. En sú staðreynd að vinstra augað mitt var á kafi í bólgu og viðbjóði […]

Read ‘Horfðu á björtu hliðarnar…’

Makleg málagjöld

27 March 2005 | molar | 10 Comments

Það er alveg ljóst að hin æðri máttarvöld fíla ekki Ace of Base. Að minnsta kosti fór ekki vel fyrir Ace of Base stúlkunni þetta kvöld. Hún endaði nefnilega ekki í passamyndatöku á Rosenthaler Platz, eins og svo oft áður, heldur í myndatöku á röntgendeild bráðamóttökunnar í hverfinu.
Á heimleiðinni frá lestarstöðinni þurfti ég svo mikið […]

Read ‘Makleg málagjöld’

Kokkteilar og karaókí

25 March 2005 | molar | No Comments

Eftir hremmingarnar á hommabarnum voru það buguð Andrés og Rúna sem fóru út á lífið á svipuðu svæði laugardegi seinna. Við hittum Sepp, þýskan vin okkar, á skuggalegum kokteilbar með sand á gólfinu, þannig að manni fannst maður staddur á suðrænni strönd í miðri Berlín. Þökk sé 2-fyrir-1-tilboði barsins leist okkur sífellt betur á hugmynd […]

Read ‘Kokkteilar og karaókí’

Baráttan við kerfið

23 March 2005 | molar | 2 Comments

Á þeim stutta tíma sem við höfum búið í Þýskalandi höfum við lent oftar upp á móti kerfinu, aðallega hjá háskólunum, en við höfum tölu á. Fyrst brá okkur þegar við sáum óyfirstíganlega hindrun, en reynslan er greinilega farin að segja til sín.
Um helgina fengum við bréf frá háskólanum, þar sem okkur var tilkynnt að […]

Read ‘Baráttan við kerfið’

YMCA

19 March 2005 | molar | 2 Comments

Um daginn gistu hjá okkur tvær finnskar vinkonur hans Andrésar og voru þær hinir ágætustu gestir. Þær eru samkynhneigðar og eiga finnskan vin í Berlín sem einnig er samkynhneigður. Næturlífið bar því óvenju mikinn keim af öðrum skemmtistöðum en við Andrés erum vön að fara á.
Merkilegastur þótti okkur einn klúbbur við Nollendorfplatz, sem virtist hafa […]

Read ‘YMCA’

Vor í lofti

16 March 2005 | molar | 2 Comments

Síðustu tvo daga hefur skyndilega vorað í Berlín, þannig að síðdegis í dag var bara orðið frekar hlýtt (veðurstofan á netinu segir að sé 17 stiga hiti, þó ég trúi því ekki alveg). Fyrir vikið hefur stemning borgarbúa stórbatnað, sem er til dæmis hægt að sjá á niðurlagi svarbréfs sem við fengum frá skrifstofukonu í […]

Read ‘Vor í lofti’

Grettir kveður

16 March 2005 | molar | 1 Comment

Á ársplaninu okkar er að heimsækja Ísland í nokkrar vikur í ágúst komandi. Að góðu fríi loknu munum við svo halda aftur til Berlínar að dýpka viskubrunnana. Fríið hefur undanfarna daga tekið á sig breytta mynd, eftir að ég tók stærðarinnar ákvörðun: Íbúðin mín á Grettisgötu er komin í hendur fasteignasala. Í sumar bretti ég […]

Read ‘Grettir kveður’

Furdulegir draumar

15 March 2005 | molar | 3 Comments

Mig dreymdi alveg svakalega mikid i nott og vaknadi alveg eftir mig. I fyrri hluta draumsins var eg stodd i Gettu Betur sem keppandi, en tetta var ekki lidakeppni heldur einstaklingskeppni. Eg var frekar stressud en fannst eg samt standa mig vel. Til daemis var eitt verkefnid folgid i tvi ad teikna mynd af Rolling […]

Read ‘Furdulegir draumar’

Arabiskir klaufabardar

14 March 2005 | molar | 2 Comments

Netkaffihusid okkar, Al Hamra, hefur gengid i gegnum nokkrar breytingar sidustu manudi og var tvi lokad. Nu er buid ad opna a ny en ekki er ollu lokid. Medan vid hofum setid her er buid ad bora og banka, og a naesta bordi vinna fimm filefldir karlmenn ad tvi ad koma upp syningartjaldi.
En tar sem […]

Read ‘Arabiskir klaufabardar’

Arg

7 March 2005 | molar | 1 Comment

Mér finnst rosalega fínt þegar ég á samræður við Þjóðverja sem ég þekki og þeir leiðrétta málfræðivillurnar mínar meðan á samtalinu stendur. Það hjálpar mér að læra enn meira án þess að spilla fyrir samtalinu.
Mér finnst allt í lagi þegar ég spjalla við Þjóðverja sem ég þekki lítið eða ekkert og þeir leiðrétta stærstu villurnar […]

Read ‘Arg’

Laus við tengdó

5 March 2005 | molar | No Comments

Nú erum við aftur ein eftir þriggja daga heimsókn mömmu Andrésar, Einars bróður hans og Andy. Heimsóknin tókst alveg með ágætum. Við þræddum nokkur söfn og skoðuðum helstu merkisstaði borgarinnar, auk þess að skófla í okkur voða góðum mat hér og þar.
Á morgun heldur hið hefðbundna líf okkar áfram; ritgerðarskrif og heimatilbúinn matur.

Read ‘Laus við tengdó’