Arg
7 March 2005 | Rúna
Mér finnst rosalega fínt þegar ég á samræður við Þjóðverja sem ég þekki og þeir leiðrétta málfræðivillurnar mínar meðan á samtalinu stendur. Það hjálpar mér að læra enn meira án þess að spilla fyrir samtalinu.
Mér finnst allt í lagi þegar ég spjalla við Þjóðverja sem ég þekki lítið eða ekkert og þeir leiðrétta stærstu villurnar mínar á meðan.
Mér finnst algjörlega óþolandi þegar ég ræði við Þjóðverja sem ég þekki ekki neitt og þeir sjá sig ekki eingöngu knúna til að leiðrétta eiginlegar villur, heldur koma með athugasemd eftir hvert orð um hvernig mætti líka segja það, án þess að mín útgáfa hafi endilega verið vitlaus. Ég læri ekki neitt út af pirringi og þessi vísir af samtali deyr algerlega í fæðingu.
Svona er víst erfitt að vera útlendingur…
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Þetta er bögg, ég fékk að heyra margar svona sögur frá Katie á sínum tíma.
Þetta er annars í fyrsta sinn í svona hálfan mánuð sem ég hef komist inn á síðuna hjá ykkur, ég hélt satt að segja að búið væri að loka henni.