Grettir kveður

16 March 2005 | Andrés

Á ársplaninu okkar er að heimsækja Ísland í nokkrar vikur í ágúst komandi. Að góðu fríi loknu munum við svo halda aftur til Berlínar að dýpka viskubrunnana. Fríið hefur undanfarna daga tekið á sig breytta mynd, eftir að ég tók stærðarinnar ákvörðun: Íbúðin mín á Grettisgötu er komin í hendur fasteignasala. Í sumar bretti ég upp ermarnar, dreifi eigum mínum á vini og kunningja og kem því sem mér þykir vænst um fyrir í pappakössum í bílskúrnum hjá mömmu. Svo kveð ég blessað slotið fyrir fullt og allt. Allt er í heiminum hverfult, sagði einhver…

1 Comment

  1. Ragnhildur litla frænka said on 16 Mar 2005 at 17:40:

    Fer þá grreyið hannes líka í bílskúrinn hjá mömmu ykkar?

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.