Vor í lofti

16 March 2005 | Andrés

Síðustu tvo daga hefur skyndilega vorað í Berlín, þannig að síðdegis í dag var bara orðið frekar hlýtt (veðurstofan á netinu segir að sé 17 stiga hiti, þó ég trúi því ekki alveg). Fyrir vikið hefur stemning borgarbúa stórbatnað, sem er til dæmis hægt að sjá á niðurlagi svarbréfs sem við fengum frá skrifstofukonu í stjórnsýslu háskólans:

Ich wünsche Ihnen alles Gute … der Frühling läßt sich nicht mehr verleugnen – heute habe ich die ersten Krokusse gesehen!

(Lausleg þýðing: Ég óska yður alls hins besta … vorið leynir sér ekki lengur – í dag sá ég fyrsta krókusinn!)

2 Comments

  1. Ágústa said on 17 Mar 2005 at 00:10:

    Æji, þetta var nú bara algerlega sætt hjá kerlingunni! Ég myndi senda henni krókus ef ég væri ekki svona slæm í mjöðminni …

  2. eliasingi said on 17 Mar 2005 at 13:42:

    Sæl og blessuð skötuhjú !
    Það er nú allt annað en vor í lofti hér á Íslandi. Vindur, snjór og viðbjóður eru hér enn við öll völd en sem betur fer er farið að birta snemma. Ég er líka kominn með nýja bloggsíðu sem þið ættuð endilega að kíkja á því nú er svo auðvelt fyrir mig að blogga að ég hlýt að vera duglegri við það.

    mfG
    eliasingi

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.