Baráttan við kerfið
23 March 2005 | Andrés
Á þeim stutta tíma sem við höfum búið í Þýskalandi höfum við lent oftar upp á móti kerfinu, aðallega hjá háskólunum, en við höfum tölu á. Fyrst brá okkur þegar við sáum óyfirstíganlega hindrun, en reynslan er greinilega farin að segja til sín.
Um helgina fengum við bréf frá háskólanum, þar sem okkur var tilkynnt að ef við skiluðum ekki einhverjum ákveðnum pappírum fyrir mánaðarlok yrðum við samstundis brottskráð. Í staðinn fyrir að kippa okkur upp við þetta og hafa áhyggjur, einsog við hefðum kannski einhverntíman gert, hlógum við bara.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
múhahahahaha……..
Æðruleysið algert kemur ykkur langleiðina. Ef þar um þrýtur, vil ég benda á leiðbeiningar varðandi hernaðarkænsku gegn skrifræði. Þær er að finna í hinu merka riti Ástríkur og þrautirnar tólf. Dæmisöguna er að finna þegar Ástríkur og Steinríkur eru sendir í margra hæða embættisbyggingu að fá útfyllt eyðublað. Þar á göngunum (eins og í skólanum ykkar?) eru ófáir sturlaðir einstaklingar sem buguðust á skriffinskunni og ráfa um rauðeygðir og glórulausir. Ástríkur og Steinríkur sigla hraðbyri í sömu örlög, þar til þeim dettur í hug krókur á móti bragði: að biðja um eyðublað sem er ekki til. Og þá verður fjandinn laus!
Mæli með að þið skötuhjú verðið ykkur úti um þessa bók, ef það er hægt vegna skrifræðis……