Makleg málagjöld

27 March 2005 | Rúna

Það er alveg ljóst að hin æðri máttarvöld fíla ekki Ace of Base. Að minnsta kosti fór ekki vel fyrir Ace of Base stúlkunni þetta kvöld. Hún endaði nefnilega ekki í passamyndatöku á Rosenthaler Platz, eins og svo oft áður, heldur í myndatöku á röntgendeild bráðamóttökunnar í hverfinu.

Á heimleiðinni frá lestarstöðinni þurfti ég svo mikið að pissa að ég hálf hljóp. Þegar ég ætlaði fyrir horn rak ég tána í skakka hellu í gangstéttinni og hófst á loft. Önnur eins tilþrif hafa ekki sést síðan á síðustu Ólympíuleikum í dýfingum, nema atvinnumennirnir hafa vit á að bregða höndunum fyrir sig. Ég virðist hins vegar hafa lagt aðaláherslu á að láta sem mestan þunga lenda á höfðinu.

Andrés hirti mig upp úr götunni og dreif mig upp á slysó. Þar tók á móti okkur yndislegur læknir sem þreif sárin, bjó um þau og sagði brandara. Í röntgenmyndatökunni kom í ljós að kollurinn var í lagi og ekkert brotið.

Ef ég leit illa út þarna um nóttina beið mín ekkert betra daginn eftir. Andlitið á mér bókstaflega blés út vinstra megin svo að augað hvarf. Ég myndi láta fylgja með mynd ef mér þætti ekki of vænt um ykkur.

Síðan þá er ég búin að heimsækja skurðlækni tvisvar sinnum, til að láta skipta um umbúðir, og útlitið fer sífellt batnandi. Ég er meira að segja farin að geta spásserað um göturnar og skrifað ritgerðir. En ég held að það líði örlítið lengri tími þangað til Ace of Base stúlkan skellir sér í kokteila og karaoke.

10 Comments

  1. Hrönn said on 27 Mar 2005 at 14:47:

    ÆÆ greyið mitt, (hefði samt viljað sjá þig takast á loft!! hehe) Gleðilega páska elskurnar og hafið það gott. Kv Hrönn

  2. Ragnhildur litla frænka said on 27 Mar 2005 at 21:11:

    Almáttugur, elsku frænka, voðalegt er að heyra þetta!!! Þú verður nú bara að fara að ganga með þvagpoka á þér til að forðast svona slys!

  3. Dagný said on 28 Mar 2005 at 00:05:

    Elskan mín, hræðilegt að heyra en þetta hlýtur að gróa áður en þú giftir þig! En gaman að heyra að þú hafir farið í karókí og slegið svona aldeilis í gegn. Er það þá Ölver í sumar??? Vona að þið hafið það gott.

  4. Ágústa said on 29 Mar 2005 at 20:13:

    Mynd! Ég vil fá mynd!

  5. eliasingi said on 30 Mar 2005 at 19:39:

    “Já, já mynd mynd”
    Sagt eins og Beavis.

  6. keinbetreff » Blog Archive » Fatlafólið said on 30 Mar 2005 at 19:47:

    [...] da áskorana smeygi ég hér með mynd af slysadrottningunni, tveimur dögum eftir að hún flaug svo eftirminnilega á hausinn. This entry was posted [...]

  7. Flosi said on 31 Mar 2005 at 19:16:

    Muna thvagpokann næst…

  8. HANNI said on 4 Apr 2005 at 16:46:

    hilfe…was ist denn mit runa passiert?
    ich kann euch leider nicht anrufen, da ich mein handy auf einer autobahn raststätte liegen gelassen habe und ich keine nummern im kopf habe.
    jedenfalls alles alles gute, runa!

  9. keinbetreff » Blog Archive » Hættuleg samkeppni said on 26 Apr 2005 at 18:51:

    [...] by Andrés Einsog dyggir lesendur muna birtust um daginn fréttir af slysi og spítalaheimsókn Rúnu hér á síðunni. Nú hefur Craig, vinur okkar og nágranni (sem hel [...]

  10. rape videos said on 2 May 2006 at 20:16:

    Mexico is da best city. Your article looks pretty good.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.