Horfðu á björtu hliðarnar…
28 March 2005 | Rúna
Eftir að hafa nuddað andlitinu á mér upp úr gangstétt fannst mér ekkert smá erfitt að láta sjá mig úti á götu næstu daga. Mér fannst allir vera að glápa á mig, sem þeir reyndar voru, og leið hreint ekkert vel. En sú staðreynd að vinstra augað mitt var á kafi í bólgu og viðbjóði olli mér ekki mestum áhyggjum. Ég óttaðist meira að fólk tæki eftir því að hægra augað væri ekki með maskara.
Eftir því sem tíminn leið vandist ég því að labba um göturnar eins og gangandi umferðaslys og kærði mig minna um hvað fólki fannst. Ég er meira að segja farin að sjá bjarta hlið á þessu öllu saman. Ég þarf ekki að eyða nokkrum tíma í að hafa mig til áður en við förum út. Það skiptir engu máli hvort buxurnar séu í stíl við bolinn, því fólk er of upptekið við að horfa á andlitið. Ég þarf ekki einu sinni að þurrka í kringum munninn eftir að hafa borðað Currywurst, það sér ekki nokkur maður hvort þetta sé tómatsósa eða storknað blóð.
Ó ljúfa líf.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
ó kræst! var ad tæknivædast aftur eftir ad hafa verid heima á Hú um páskana og hvad sé ég? vinir mínir í Germany halda ad their geti flogid. En gott ad thú hafir Pollyönnu-syndromid í thér Rúna mín:)