Fatlafólið

30 March 2005 | Andrés

Vegna fjölda áskorana smeygi ég hér með mynd af slysadrottningunni, tveimur dögum eftir að hún flaug svo eftirminnilega á hausinn.

Blá og marin, en samt svo sæt

11 Comments

  1. Hrönn said on 30 Mar 2005 at 20:24:

    Jesús minn!!! Að sjá þig kona… hvorki maskari né gloss… hnusss, hvurlsags er þetta. ‘eg vona nú að þetta grói sem fyrst greyið mitt.

  2. eliasingi said on 30 Mar 2005 at 20:49:

    Dííííííísússs ! Ég hefði bara átt að trúa þér og ekki fara fram á að sjá ! Úff ! En sem betur fer vitum við að öll sár gróa, nema kannski þau sem hann Andrés hefur orsakað í sálu minni. Já, Andrés þú veist hvað ég á við ? Þú sendir mér bara einhverjar stuttar, ruglandi spurningar um froðu í brúsa sem núa heila minn dag frá degi með sandpappír uns hann hverfur. Á meðan þetta ferli á sér stað þá fær MARIE, af öllum, langa og innilega pósta frá þér. Ég skil þetta ekki. Ég hélt að við værum like this X !

  3. Ágústa said on 30 Mar 2005 at 23:42:

    Jeijjj … grós :o)

  4. Sibbý said on 31 Mar 2005 at 13:46:

    Juminn eini, nú mega Ace of Base bara taka sig saman í andlitinu og skammast sín, já og feta í önnur fótspor – og þá munu máttarvöldin meta þau og tilraun þína til að feta í þeirra fótspor! stattu þig stelpa… þetta kemur allt saman, bara sólhatt, arniku og lavender á línuna :)

  5. sun said on 31 Mar 2005 at 15:22:

    sjitt (hér eiga að koma fullt af upphrópunuarmerkjum en ég er að hamra á bilað lyklaborð og þess vegna er bara þessi útskýring).
    Helvítis Svíapopp ( 3 upphrópunarmerki).

  6. Dagný said on 31 Mar 2005 at 19:00:

    Elsku vinkona…er bara orðlaus!

  7. Brynwulf von Essling said on 4 Apr 2005 at 00:40:

    Það er mjög léleg sagan um að hafa dottið á stétt, allir vita að það sem að gerðist var það að Andrés var að horfa á fótbolta þegar að Rúna fór að ryksuga.

  8. Dóra G said on 4 Apr 2005 at 21:05:

    ó mæ, hef ekki litið inn í smá tíma og svo er bara stórslys sem tekur á móti manni… vonandi grær þetta fljótt. Ég hugsa að maður hefði nú bara pissað á sig ef hlaupin á klósettið enduðu svona…

  9. Ragnhildur frænka said on 5 Apr 2005 at 19:41:

    Guð minn góður, hjúkkusjálfið mitt hefði nú viljað vera á staðnum til að geta hlúð að sárunum og sótthreinsa og græða með viðeigandi sótthreinsilausnum!!! En fallegt ertu, þrátt fyrir allt :)

  10. Arndís og Maddi said on 10 Apr 2005 at 23:39:

    Guð minn góður við fengum algjört sjokk þetta er svakalegt.Vonandi ertu farin að jafna þig greyið mitt. Farðu vel með þig.

  11. keinbetreff » Blog Archive » Hættuleg samkeppni said on 26 Apr 2005 at 18:43:

    [...] ppni by Andrés Einsog dyggir lesendur muna birtust um daginn fréttir af slysi og spítalaheimsókn Rúnu hér á síðunni. Nú hefur Craig vinur okkar (sem heldur úti he [...]

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.