Archives for April 2005
Páfabíll
29 April 2005 | molar | 1 Comment
Eitt af vörumerkjum Jóhannesar Páls II var hvíti bíllinn með glerbúrinu sem hann sat í við hátíðleg tækifæri. Núna gefst almenningi hins vegar kostur á að kaupa bíl nýja páfans, Benedikts XVI, á eBay:
Síðasti eigandi: Jósef Ratzinger
Sem stendur er hæsta boð rúmar 40 þúsund evrur, sem hlýtur að teljast frekar hátt verð fyrir lítinn VW […]
Hættuleg samkeppni
26 April 2005 | molar | 2 Comments
Einsog dyggir lesendur muna birtust um daginn fréttir af slysi og spítalaheimsókn Rúnu hér á síðunni. Nú hefur Craig, vinur okkar og nágranni (sem heldur úti heimasíðu bæði með G-i og án þess), ákveðið að skjóta okkur ref fyrir rass og birtir sögu af sjálfum sér. Þar sem hann er með tæknina með sér í […]
Lou Reed
26 April 2005 | molar | 1 Comment
Fórum á tónleika í gærkvöldi, með miðunum sem Rúna fékk í jólagjöf. Ég verð að játa að ég varð fyrir svolitlum vonbrigðum — sem er kannski fylgifiskur þess að fara á tónleika hjá svona gömlum tónlistarmanni. Við vorum helst í stuði fyrir Lou Reed ársins 1977, en fengum of stóran skammt af Lou Reed ársins […]
Flugskita
23 April 2005 | molar | 2 Comments
Almennt eru klósettferðir tíðindalausar. Sérstaklega þegar maður fer á almenningssalerni. Þar skilar maður af sér í friði og ró og drífur sig svo aftur út. Þannig var samt ekki klósettferðin sem ég fór í dag. Hún var allt öðruvísi.
Ég stóð við pissuskálina og meig einsog ekkert væri sjálfsagðara. Fyrir aftan mig, í einum básnum, heyrði […]
Sieberman
22 April 2005 | molar | No Comments
Andrés sagði mér frá einum af sínum undarlegu draumum um daginn. Í þetta skiptið dreymdi hann einn kennarann okkar, hana frú Sieber, í Superman-búningi. Sjálfur var Andrés líka í búningi en ekki liggur ljóst fyrir hvers konar sá var. Mér fannst voðalega fyndið að sjá frú Sieber fyrir mér í Superman-búningi.
En það var ekki fyrr […]
Eldvarnir
20 April 2005 | molar | No Comments
Á veggjum skólans má sjá miða hér og þar sem kenna manni hvernig best sé að bregðast við ef eldur brýst út. Aðgerðalistinn er í nokkrum liðum, en röðin á þeim tveim fyrstu er dáldið forvitnileg:
Slökkvið allan þann eld sem þið getið, með öllum mögulegum ráðum.
Slökkvið í því fólki sem kviknað hefur í.
Er þetta ekki […]
Verkamaðurinn verslar
18 April 2005 | molar | 3 Comments
Þjóðverjar eru frekar umhverfisverndarsinnað fólk. Það má t.d. sjá á því að þeir koma yfirleitt alltaf með burðarpoka úr taui út í búð svo þeir þurfi ekki að kaupa plastpoka. Eða kannski eru þeir bara svona nískir.
Áðan skrapp ég út í búð og sá afskaplega róttækt dæmi um Þjóðverja sem vildi ekki kaupa plastpoka. Hann […]
Heil Hilter?
16 April 2005 | molar | 1 Comment
Mikið óskaplega brá mér þegar ég las utanáskriftina á umslagi sem mér barst í gær. Sendandinn átti nefnilega heima í bæ sem ber hið ósennilega nafn Hilter. Ég þurfti að lesa það nokkrum sinnum til að fullvissa mig um að ekki væri um að ræða síðustu leifar Þriðja ríkisins.
Vissulega hefur Hilter verið til í rúm […]
Þriggja manna sæng
15 April 2005 | molar | 2 Comments
Ég er ekki lengur eina konan á heimilinu. Fyrir rúmri viku flutti þýsk stúlka að nafni Alice inn til okkar eftir langa bið. Alice er ekki einungis ljóshærð, grönn og tælandi, hún er líka snör í snúningum. Þetta er mynd af stúlkunni okkar:
Alice gerir okkur kleift að fara á netið hvenær sem er og downloada […]
Back to school
12 April 2005 | molar | 1 Comment
Í dag var fyrsti skóladagurinn okkar eftir það sem Þjóðverjar kalla fyrirlestrarfrí og varir í tvo mánuði. Þetta var nú svo sem ekki sérlega mikið frí þar sem mestur tíminn fór í að undirbúa sig undir próf og skrifa ritgerðir. Samt sem áður náðum við að njóta borgarinnar svolítið og komum hress til leiks á […]
Lóufréttir
8 April 2005 | molar | No Comments
Mér hefur alltaf þótt dáldið sveitó þegar fréttir af fyrstu lóunni birtast í íslenskum fjölmiðlum. Einhvern veginn stóð ég í þeirri trú að þetta væri séríslensk fréttategund, en svo virðist nú ekki vera. Í þýsku blaði birtist í gær grein með titlinum „Fyrsti hvíti kollurinn skýst upp“. Þar var ekki á ferðinni enn ein fréttin […]
Grétugarbógata
3 April 2005 | molar | 1 Comment
Undanfarna daga höfum við nýtt okkur brakandi veðurblíðu og frí frá skólabókum til að rölta um Berlín og kynnast hverfum sem við höfum aldrei skoðað. Eitt af því sem vekur gjarnan kátínu hjá okkur eru gatnanöfnin. Í gær rákumst við á nafn einnar ástsælustu kvikmyndaleikkonu sögunnar, sem borgarskipuleggjendur hafa séð ástæðu til að heiðra […]
Þýsk skítalög
2 April 2005 | molar | 2 Comments
Fyrir rétt rúmum sextíu árum komst þýska borgin Dresden á spjöld sögunnar þegar flugvélar bandamanna vörpuðu reiðinnar býsn af sprengjum yfir hana. Síðustu daga hefur borgin verið umtöluð í þýskum fjölmiðlum — en þetta sinnið útaf hundaskít.
Þjóðverjar eru miklir hundavinir. Þessu kemst maður fljótt að þegar maður gengur um götur Berlínar, þar sem lítið þarf […]
Séð og sexí
1 April 2005 | molar | No Comments
Við erum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá sent heim til okkar vikulega nýjasta tölublaðið af Séð og Heyrt. Þetta er ekki í kaldhæðni, heldur einlægni sagt, því það er virkilega gaman að fletta gegnum blaðið og sjá þá sem eru ástfangnir, óléttir eða í fegurðarsamkeppnum. Svo veitir krossgátan mér alltaf mikla gleði og ég er […]