Séð og sexí

1 April 2005 | Rúna

Við erum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá sent heim til okkar vikulega nýjasta tölublaðið af Séð og Heyrt. Þetta er ekki í kaldhæðni, heldur einlægni sagt, því það er virkilega gaman að fletta gegnum blaðið og sjá þá sem eru ástfangnir, óléttir eða í fegurðarsamkeppnum. Svo veitir krossgátan mér alltaf mikla gleði og ég er sífellt að bæta mig, er farin að rúlla henni upp á litlum hálftíma.

Það er þó eitt sem stingur mig í hvert einasta sinn sem ég opna Séð og Heyrt. Greinarhöfundarnir notast mikið við orð með kynferðislegri tengingu, svo sem „sexý“, „eggjandi“, „tælandi“ og „þokkafull“, sem trufla mig ekkert í sjálfu sér, en eru notuð á óskiljanlegan hátt. Ég hef kannski einkennilegan smekk, en mér virðist að því ósmekklegra sem fólk er, þeim mun sterkari orð eru notuð til að lýsa kynþokka þeirra.

Hámarkinu var náð þegar ég leit á forsíðu síðasta tölublaðs og sá mynd af virkilega ófríðum kvenmanni með lítil augu, pétursskarð og þykkar, grófar fléttur. Og fyrirsögnin?

Gísli Marteinn: Sexí í kjól!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.