Lóufréttir
8 April 2005 | Andrés
Mér hefur alltaf þótt dáldið sveitó þegar fréttir af fyrstu lóunni birtast í íslenskum fjölmiðlum. Einhvern veginn stóð ég í þeirri trú að þetta væri séríslensk fréttategund, en svo virðist nú ekki vera. Í þýsku blaði birtist í gær grein með titlinum „Fyrsti hvíti kollurinn skýst upp“. Þar var ekki á ferðinni enn ein fréttin um páfa, heldur var verið að segja Berlínarbúum fréttir úr sveitinni. Í fyrradag sá nefnilega bóndi fyrsta aspasinn gægjast uppúr moldinni sinni.
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.