Þriggja manna sæng
15 April 2005 | Rúna
Ég er ekki lengur eina konan á heimilinu. Fyrir rúmri viku flutti þýsk stúlka að nafni Alice inn til okkar eftir langa bið. Alice er ekki einungis ljóshærð, grönn og tælandi, hún er líka snör í snúningum. Þetta er mynd af stúlkunni okkar:

Alice gerir okkur kleift að fara á netið hvenær sem er og downloada eins miklu og við viljum. Við getum hangið á msn, spjallað á skype og horft á RÚV í beinni.
Rúsínan í pylsuendanum er litla airport-tækið okkar, sem gerir það að verkum að við höfum þráðlaust net. Þegar við vöknum eldsnemma á morgnana getum við rennt yfir Fréttablaðið á tölvutæku formi meðan við sötrum kaffið. Nú býð ég bara eftir því að Andrés taki tölvuna með sér á dolluna.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
og thessu tekur thú med thínu jafnadargedi rúna mín….
msn-adressu já takk..
Mér finnst þessi Alice með óvenjulega langar lappir og hendur. Hvað er hún eignlega há, það væri gaman að hitta hana, nei ég reyndi það síðast en hún vildi ekki sjá mig, spurning hvort að Andrés sé eitthvað eigingjarn á hana.
P.s. Ég skilaði ritgerðinni og kennarinn sagði að hún væri fín, sem var gott. Hann spurði líka hvort hann mætti sýna hana manni sem skrifaði doktorsritgerð um sjálfsævisögur. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessu, möguleikarnir eru tveir annað hvort var hún ágæt eða hún var bara góður brandari, ég vona að hún hafi verið ágæt.