Verkamaðurinn verslar

18 April 2005 | Rúna

Þjóðverjar eru frekar umhverfisverndarsinnað fólk. Það má t.d. sjá á því að þeir koma yfirleitt alltaf með burðarpoka úr taui út í búð svo þeir þurfi ekki að kaupa plastpoka. Eða kannski eru þeir bara svona nískir.

Áðan skrapp ég út í búð og sá afskaplega róttækt dæmi um Þjóðverja sem vildi ekki kaupa plastpoka. Hann stóð við kassann og raðaði vörunum sínum í HJÓLBÖRUR! Og ekki einhverjar snyrtilegar hjólbörur sem hann notar bara í innkaup, heldur ógeðslegar hjólbörur sem voru allar út í þurri steypu eða einhverju álíka. Svo labbaði hann út úr búðinni með bros á vör, með mjólkurfernur, brauð og önnur matvæli í börunum.

3 Comments

  1. sun said on 18 Apr 2005 at 13:24:

    ahahaha snilld!!

  2. Hrönn said on 19 Apr 2005 at 00:02:

    Hahahaha þetta verð ég að prófa!! Arka með hjólbörur í bónus á laugaveginum !! geðveikur sparnaður og auðveldar burðinn!! :)

  3. Maggamegalúf said on 19 Apr 2005 at 19:06:

    hahahahaha

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.