Sieberman

22 April 2005 | Rúna

Andrés sagði mér frá einum af sínum undarlegu draumum um daginn. Í þetta skiptið dreymdi hann einn kennarann okkar, hana frú Sieber, í Superman-búningi. Sjálfur var Andrés líka í búningi en ekki liggur ljóst fyrir hvers konar sá var. Mér fannst voðalega fyndið að sjá frú Sieber fyrir mér í Superman-búningi.

En það var ekki fyrr en seinna um daginn sem ég átti fyrst bágt með mig af hlátri yfir þessu. Við sátum í tíma hjá frú Sieber og vorum að læra um bókmenntir miðalda. Frú Sieber er mjög nútímaleg kona og hefur yfirleitt með sér skjávarpa sem hún tengir í tölvuna sína. Þegar Screen-saverinn hennar fór í gang kom upp sú mynd á vegginn þar sem maður virðist fljúga framhjá þúsund litlum stjörnum. Meðan hún útskýrði fyrir okkur miðaldaþýsku sat ég flissandi í sætinu mínu. Ég gat auðvitað ekki um annað hugsað en ofurkvendið frú Sieber á harðaspani um himinhvolfið í Superman-búningnum og með skikkjuna sína. Og um leið blótaði ég Andrési í huganum fyrir að deila þessum fáránlega draumi með mér og skemma næstum heila kennslustund.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.